Meðlimir í hverfisráði Grímseyjar og aðrir íbúar með fasta búsetu í eyjunni hafa óskað eftir því að áformum að auglýsa tvær fasteignir í eynni til sölu verði slegið á frest. Eigandi þessara eigna er Akureyrarbær en íbúarnir óttast að þær verði keyptar af aðila eða aðilum sem ætli sér að nýta þær til sumardvalar en ekki fastrar búsetu.
Bréf frá þessum áhyggjufullu Grímseyingum var tekið fyrir á fundi bæjarráðs Akureyrar fyrir helgi. Um er að ræða tvíbýlishús sem skiptist fasteignirnar Vallargötu 13 og 15.
Fyrrnefnda eignin er samkvæmt fasteignaskrá 105,10 fermetrar og metin á 15.850.000 krónur. Síðarnefnda eignin er jafnstór og fasteignamat hennar hið sama. Byggingarár þeirra er 2006.
Í bréfi Grímseyinga til bæjarráðs Akureyrar er óskað eftir að tímabundið verði fallið frá því að auglýsa fasteignirnar að Vallargötu 13 og 15 til sölu. Áhyggjur þeirra beinist einkum að því að nýir eigendur muni ekki hafa fasta búsetu í eyjunni, heldur nýta eignirnar til sumardvalar fáeinar vikur á ári. Sala á húseignum til fólks sem ekki ætli að búa í eyjunni, veiki stoðir samfélagsins og stuðli að því að smám saman fjari undan fastri búsetu í Grímsey. Óskað er eftir að ekki verði ráðist í sölu á Vallargötu 13 og 15 að svo komnu máli, þannig að hópnum gefist ráðrúm til að finna aðra lausn á málinu sem geti orðið til þess að þar yrði búið allan ársins hring með það fyrir augum að styrkja og efla byggðina í Grímsey.
Í sameiginlegri bókun bæjarráðs er ekki skýrt kveðið á um að sölu þessara fasteigna bæjarsins í eyjunni verði slegið á frest. Hins vegar er tekið undir með hverfisráði Grímseyjar að mikilvægt sé að tryggja að eignirnar, styðji áfram við búsetu í eyjunni. Bæjarlögmanni er falið að vinna málið áfram.