Fréttir

Kastaðist af mótorhjóli og endaði á gjörgæslu – fær tæpar 16 milljónir frá VÍS

Mynd
Héraðsdómur Reykjavíkur

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tryggingafélagið VÍS til að greiða sendibílstjóra tæplega 15,9 milljónir króna auk vaxta vegna alvarlegs umferðarslyss sem hann lenti í sumarið 2020.

Slysið varð þegar bifreið var ekið í veg fyrir mótorhjól mannsins með þeim afleiðingum að hann kastaðist af hjólinu og hafnaði á gangstétt. Hann hlaut meðal annars áverka á höfði, sköflungi og úlnlið og dvaldi í þrjá daga á gjörgæslu.

Varanleg örorka mannsins var síðar metin 90 prósent, að teknu tilliti til fyrri örorku vegna slyss árið 2018.

Maðurinn var sjálfstætt starfandi sendibílstjóri og rak eigið fyrirtæki þar sem hann var eini starfsmaðurinn. Eftir slysið gat hann ekki snúið aftur til vinnu og samkvæmt málatilbúnaði hans varð fyrirtækið gjaldþrota.

VÍS hafði þegar greitt manninum bætur en ágreiningur reis um hvort hagnaður af rekstri fyrirtækis hans ætti að teljast með við útreikning örorkubóta.

Tryggingafélagið taldi að eingöngu ætti að miða við launatekjur mannsins en hann hélt því fram að hagnaður fyrirtækisins hefði alfarið byggst á eigin vinnuframlagi.

Dómurinn féllst á sjónarmið mannsins og taldi að taka bæri tillit til hagnaðar fyrirtækisins, enda hefði hann sýnt fram á að hagnaðurinn væri tilkominn vegna vinnu hans og hefði nýst honum til framfærslu.

VÍS var því dæmt til að greiða manninum 15.889.893 krónur auk vaxta og 960 þúsund krónur í málskostnað til ríkissjóðs.