Fréttir

Segir Íslendingum að huga að þessu ef þeir vilja borga með korti í netleysi

Mynd
Finnur Oddsson forstjóri Haga. Mynd/Fréttablaðið/Vilhelm

Hvað gerist ef ríki verður fyrir umfangsmikilli tölvuárás eða ef raforkukerfi lamast? Nú á tímum fer verslun fyrst og fremst fram í gegnum nettengingur. Reiðufé heyrir nánast sögunni til. Flestir greiða með greiðslukortum og nota þá gjarnan farsíma sína í staðinn fyrir plastkortin. Þetta gæti orðið til vandræða í neyð en í gær greindi Pressan frá því að danski smásölurisinn Salling Group vinnur nú að því að koma 51 neyðarverslun á laggirnar. Þessar verslanir, sem eiga að vera tilbúnar á næsta ári, eiga að geta haldið dyrunum opnum fyrir viðskiptavini í minnst tvo daga án rafmagns eða nettengingar. 

Sjá einnig: Danir undirbúa neyðarverslanir ef til krísu kemur – Verða með 50 vörutegundir

En hvað með Ísland?

Þessu veltu þáttastjórnendur í Bítínu á Bylgjunni fyrir sér og fengu til sín Finn Oddsson, forstjóra Haga, og báðu hann að útskýra í hvaða stöðu Íslendingar væru ef hér kemur upp neyðarástand þar sem hér verður rafmagns- eða netlaust til einhvers tíma.

„Við erum ágætlega undirbúin,“ segir Finnur sem segir eðlilegt að Íslendingar velti þessu fyrir sér í ljósi þess hversu undarlegt ástandið er orðið víða í heiminum í dag. Eins búum við hér á landi við nokkurn ófyrirsjáanleika vegna náttúruaflanna sem Reykjavíkureldarnir minntu rækilega á fyrir skömmu.

„Við erum ágætlega í stakk búin til þess að tækla aðstæður eins og rafmagnsleysi, netleysi og svo framvegis, en staðreyndin er samt sú að við höfum ekkert mjög langan tíma eins og í til dæmis rafmagnsleysi.“

Finnur segir Salling gera vel með áðurnefndu framtaki, að útbúa 51 verslun þar sem áfram verður hægt að þjóna viðskiptavinum í tvo sólarhringa í neyðarástandi. Þetta hafi Salling Group ákveðið að gera að eigin frumkvæði. Fyrirtækið sé í eigu tveggja sjóða sem hafa annars vegar samfélagslegt hlutverk og hins vegar það hlutverk að reka búðir. Þannig geti félagið leyft sér að taka ákvarðanir þar sem horft er lengra en gengur og gerist.

Félagið sé nú að tryggja að það sé hægt að reka verslanirnar í 48 tíma og sé þá með lager af ákveðnum vörum sem okkur hafi verið bent á að gott væri að eiga í viðlagakassa.

Passa að kortin séu virk

Íslenskar verslanir geti ekki verið sérstaklega lengi án rafmagns.

„Búðir eru ekki útbúnar eins og agnaver þannig að það fari varaafl í gang svo hægt sé að keyra þær einhverja daga. En það er hægt að keyra búðirnar hjá okkur. Við höfum lagt mikla áherslu á að útbúa eða auka viðnámsþrótt verslana í áföllum. Hvað varðar rafmagn, ef rafmagn fer almennt, sem gerist nú ekkert sérstaklega oft hérna og þá bara á einangruðum eða afmörkuðum svæðum, þá höfum við varaafl á kössum þannig að við getum í rauninni klárað verslunarferðir okkar viðskiptavina.“

Hvað varðar netleysi þá sé það í rauninni minna mál.

„Það er hægt að taka við greiðslum í netleysi í dálítinn tíma. Reyndar ansi langan tíma.“

Færslurnar séu þá bara geymdar og það eina sem í raun skorti í slíkum aðstæðum sé að kalla eftir heimild á greiðslukortum. En Finnur bendir á eitt sem gott er að hafa í huga. Gömul kort þurfi að virkja sérstaklega. 

„Þá þarf að virkja þau í einhverjum skilningi. Það þarf að nota þau einu sinni með PIN-númeri núna eftir sumarið og þá geturðu notað þessi kort áfram í netleysi.“

Hvað með kort í símum? 

Eins er rétt að taka fram að þó að kort sem eru vistuð í farsímum fólks geti virkað í netleysi þá eru þau ekki áreiðanleg í öllum tilvikum. Það fer eftir því hvers konar stýrikerfi síminn notar og hversu marga tóka (e. token) síminn geymir. Kort sem eru vistuð í ApplePay virka í netleysi en GooglePay notar tóka sem eru vistaðir á tækjum fólks, en þegar tókarnir klárast þarf aftur að tengjast netinu til að fá fleiri. Aðrar greiðsluleiðir á farsímum, Samsung Wallet og fleiri, krefjast þess gjarnan að síminn hafi nýlega verið nettengdur eða nýlegra tóka. Þar með er ágætt að huga að því að gömlu góðu plastkortin séu virk ef til þess kemur að við þurfum á þeim að halda. 

Ekki er hægt að treysta á kortin ef rafmagnið fer líka. Almannavarnir hafa nú gefið út nýjan upplýsingabækling sem ætlað er að efla viðbúnað almennings gagnvart óvæntum atburðum. Eru Íslendingar þar hvattir til þess að hafa tiltækt reiðufé, fjárhæð sem tekur mið af fjölda heimilismanna og þeim nauðsynjum sem heimilið þarf að geta keypt. 

Sjá einnig: Almannavarnir hvetja Íslendinga til að eiga reiðufé og þriggja daga neyðarbirgðir