Fréttir

Alexander vekur athygli á alvarlegri stöðu rétt fyrir jól – „Það sem mér finnst einna sárast við þessa stöðu“

Mynd

„Styrkur samfélagsins mælist ekki eingöngu í framkvæmdum, fallegum byggingum eða fjárhagslegum árangri. Hann mælist líka í því hvernig við komum fram við þau sem þurfa mest á hjálp að halda.“

Þetta segir Alexander M. Árnason, formaður kjördæmissambands Framsóknar í Suðvesturkjördæmi, í aðsendri grein á Vísi. Þar kallar hann eftir því að bæjaryfirvöld í Hafnarfirði bregðist án tafar við þeirri óvissu sem ríkir um áframhaldandi starfsemi Mæðrastyrksnefndar Hafnarfjarðar og tryggi að efnaminni fjölskyldur í bænum geti áfram fengið nauðsynlega aðstoð, ekki síst nú þegar jólin nálgast.

Framtíðin í óvissu

Alexander gerir nýlega færslu Petru Ómarsdóttur, formanns Mæðrastyrksnefndar Hafnarfjarðar, að umtalsefni en í henni lýsti hún þungum áhyggjum sínum af stöðunni nú þegar jólin nálgast.

Petrea sagði nefndina nú vera húsnæðislausa og að þrátt fyrir fund með barna- og fjölskylduráði Hafnarfjarðar fyrir nokkrum vikum hafi engin svör borist um lausn á vandanum. Þá væri frestur til að sækja um matvælaaðstoð frá fyrirtækjum að mestu liðinn og framtíð hjálparstarfsins því í óvissu.

Hún benti á að nokkur hundruð fjölskyldur og einstaklingar treysti á aðstoð nefndarinnar, sem um árabil hefur meðal annars úthlutað matarkortum, matvælum og fatnaði til fólks í erfiðri fjárhagsstöðu. „Ég er miður mín yfir að við skulum vera í þessari stöðu,“ skrifaði Petrea og sagði að forsvarsfólk nefndarinnar hefði reynt eftir fremsta megni að finna lausn. „Boltinn er ekki lengur hjá okkur heldur bæjarstjórn Hafnarfjarðar,“ sagði hún.

Börnin eiga ekki að gjalda fyrir erfiða stöðu

Alexander tekur undir þessar áhyggjur og segir hann að fyrir margar fjölskyldur í Hafnarfirði sé þessi tími ársins þungur.

„Áhyggjur af því að eiga fyrir mat, nauðsynjum og jafnvel litlum jólagjöfum handa börnunum geta skyggt á þá gleði sem við viljum öll að fylgi hátíðunum,“ segir hann og bætir við:

„Það sem mér finnst einna sárast við þessa stöðu er að á bak við hverja beiðni um aðstoð er manneskja, fjölskylda og oft börn sem hafa ekkert um aðstæður sínar að segja. Börn eiga ekki að þurfa að gjalda fyrir erfiða fjárhagsstöðu foreldra sinna. Þau eiga að geta hlakkað til jólanna eins og önnur börn, án þess að áhyggjur af mat á borðið eða jólagjöfum skyggi á hátíðina.“

Skorar hann á núverandi meirihluta í bæjarstjórn Hafnarfjarðar til að taka þessa stöðu alvarlega og segjast án tafar niður með forsvarsfólki Mæðrastyrksnefndar til að finna raunhæfa lausn ám málinu.

„Það hlýtur að vera sameiginlegt markmið okkar allra, óháð pólitískum skoðunum, að engin fjölskylda í Hafnarfirði þurfi að standa ein þegar mest á reynir. Hér er ekki verið að biðja um munað eða óþarfa. Hér er verið að kalla eftir því að mikilvægt mannúðarstarf geti haldið áfram og að þeir sem þurfa aðstoð fái hana. Það er vonandi enn tími til að bregðast við fyrir jólin.“