Níu manns létust þegar einkaþota hrapaði í íbúðahverfi í Palm Beach á austurströnd Flórda síðdegis á sunnudag. Birt hafa verið samskipti vélarinnar við flugturninn sem segja hrollvekjandi sögu.
Dagblaðið New York Post greinir frá þessu.
„Hólí fokk við höfum ekki meiri tíma,“ voru síðustu orðin sem kvenkyns flugmaður heyrðist segja við flugturninn áður en Learjet 60 einkaþota hrapaði og sprakk í loft upp í íbúðahverfi í Palm Beach.
Vélin var á leið frá borginni Austin í Texas fylki til Bahama eyja í Karíbahafinu. Vélin lækkaði hratt flugið, eða um 27 þúsund fet á einni mínútu. Orsök slyssins eru enn í rannsókn.
Í samskiptunum við flugturninn í Miami má heyra að flugmaðurinn lýsir fyrst lítils háttar ókyrrð í lofti. Ísing sé lítil og viðráðanleg.
Allt of hratt
En síðan breytast skilaboðin og ljóst er að eitthvað mikið er að.
„Við erum að lækka um 8000 – Mayday, Mayday – Við erum að lækka 10 þúsund fet á mínútu,“ segir flugmaðurinn. „Við erum að fara allt of hratt, við lækkum 20 þúsund fet á mínútu. Við erum að fara að hrapa til jarðar.“ Svo má heyra hana öskra.
Flugumferðarstjórinn reynir að fá upplýsingar og hughreysta hana. „Nóvember 2, bravó, delta. Ég er hérna með þér, talaðu við mig,“ má heyra hann segja en skömmu seinna hætti vélin að svara.
Fólk á jörðu niðri lýsti hrapi vélarinnar eins og um væri að ræða eldflaug sem hefði verið skotið. Mikill eldhnöttur myndaðist við sprenginguna og gígur eftir skellinn.