Fréttir

Hafna því að fresta tímabundið gildistöku leyfa fyrir umdeilt sjókvíaeldi

Mynd
Hið umdeilda sjókvíaeldi á að vera í Seyðisfirði. Mynd: Wikipedia.

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað því að fresta gildistöku starfs- og rekstrarleyfa fyrir sjókvíaeldi sem til stendur að koma á laggirnar í Seyðisfirði, en eldið hefur verið vægast sagt umdeilt. Krafðist sá fjöldi aðila sem kært hafa leyfin til nefndarinnar þess að gildistöku yrði frestað á meðan kærurnar eru til meðferðar.

Starfsleyfi og rekstrarleyfi eru til handa fyrirtækinu Kaldvík og ná til sjókvíaeldis á laxi í Seyðisfirði með 10.000 tonna hámarkslífmassa, þar af 6.500 tonn af frjóum laxi.

Þeir aðilar sem kært hafa þær ákvarðanir Umhverfis- og orkustofnunar að veita starfsleyfi og Matvælastofnunar að veita rekstrarleyfi eru samtökin VÁ! og eigendur sjávarjarðanna Austdals, Brimness 1 og 2, Dvergasteins og Selstaða í Seyðisfirði. Var í báðum kærum þess krafist að gildistöku yrði frestað á meðan kæran er til meðferðar hjá nefndinni.

Þegar kemur að rekstrarleyfi Matvælastofnunar segja kærendur að mikilvægt sé að stöðva gildistöku þess á meðan kæra vegna þess sé til meðferðar hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Það feli ekki í sér heimild til framkvæmda. Til meðferðar séu hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun umsóknir um byggingarleyfi fyrir sjókvíum. Rekstrarleyfi sé grundvöllur þeirrar umsóknar. Fyrirséð sé að byggingarleyfin verði veitt á meðan málið sé til meðferðar hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála og að framkvæmdir hefjist þá þegar. Mikilvægt sé að koma í veg fyrir að framkvæmdir hefjist.

Afturkræft

Kaldvík benti á að ríkar ástæður eða veigamikil rök yrðu að vera fyrir ákvörðun um stöðvun framkvæmda eða frestun réttaráhrifa. Það mælti á móti frestun réttaráhrifa ef fleiri en einn aðili væru að máli. Hagsmunir fyrirtækisins væru gagnstæðir hagsmunum kærenda. Krafa kærenda væri studd þeim rökum einum að byggingarleyfi kynni að verða gefin út á meðan kæran væri til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni. Aftur á móti myndi starfsemi að öllum líkindum ekki hefjast áður en úrskurður um kæruna gengi í málinu. Rekstrarleyfi tæki ekki gildi fyrr en að lokinni úttekt Matvælastofnuna og væri úrskurðar að vænta innan lögbundins málsmeðferðartíma nefndarinnar. Þá væri hin umrædda starfsemi heldur ekki óafturkræf. Kæran yrði því ekki þýðingarlaus þótt réttaráhrifum leyfisins yrði ekki frestað.

Í kærunni vegna starfsleyfis frá Umhverfis- og orkustofnun og kröfunni um frestun gildistöku þess, á meðan kæran er til meðferðar, segir að þótt útsetning búnaðar bíði annarra leyfa og úttekta sé ekkert sem komi í veg fyrir að starfsleyfið verði afhent og taki gildi á meðan kæran sé til meðferðar.

Í andsvörum Kaldvíkur kom fram að krafa kærenda um frestun væri studd þeim rökum einum að starfsleyfi kynni að taka gildi á meðan kæran væri til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni. Aftur á móti mynndi starfsemi að öllum líkindum ekki hefjast áður en úrskurður gengi í málinu. Rekstrarleyfi tæki ekki gildi fyrr en að lokinni úttekt Matvælastofnunar og væri úrskurðar að vænta innan lögbundins málsmeðferðartíma nefndarinnar. Þá væri hin umrædda starfsemi heldur ekki óafturkræf. Kæran yrði því ekki þýðingarlaus þótt réttaráhrifum leyfisins yrði ekki frestað.

Engin frestun

Umhverfis- og orkustofnun sagði við mat á því hvort fallast ætti á kröfu um frestun gildistöku starfsleyfisins yrði að líta til þess hvort sýnt hafi verið fram á að án frestunar myndi gæta óafturkræfrar röskunar eða annarra þungbærra afleiðinga. Kröfur kærenda um frestun réttaráhrifa væru aftur á móti lítt rökstuddar, en hvorki væru sett fram rök sem vörðuðu hagsmuni kærenda af kröfunni né bent á atvik eða ástæðu sem leiða ættu til þess að fallast bæri á kröfuna. Ljóst væri að reksturinn hæfist ekki með skömmum fyrirvara, enda þyrftu önnur leyfi að liggja fyrir.

Niðurstaða úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna krafna um frestun gildistöku rekstrarleyfis frá Matvælastofnun og starfsleyfis frá Umhverfis- og orkustofnun er í báðum tilfellum sú að ekki liggi skýrlega fyrir hvenær fyrirhugað sé að taka eldissvæði Kaldvíkur í notkun, en af hálfu fyrirtækisins sé þó tekið fram að allar líkur séu á því að starfsemi hefjist ekki á meðan málið er til meðferðar nefndinni. Þá sé ljóst að fyrirtækið hafi ekki aflað tilskilinna leyfa til að geta hafið starfsemi sína.

Nefndin telur í ljósi þessa ekki ástæðu til að fresta gildistöku leyfanna en tekur fram að ýmis álitaefni séu uppi í málinu og beri Kaldvík alla áhættu af því að hefja starfsemi á grundvelli hinna kærðu leyfa á meðan ekki liggi fyrir endanleg niðurstaða um lögmæti þeirra.