Fréttir

Guðmundur vill láta rannsaka þá sem rannsökuðu hann - Var ákærður eftir Hrunið - Tók þátt í fléttu við einkavæðingu Búnaðarbankans

Mynd

Guðmundur Hjaltason fyrrum framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Glitnis hvetur til þess að þingsályktunartillaga um rannsókn á störfum réttarvörslu- og eftirlitsaðila í kjölfar bankahrunsins árið 2008 verði samþykkt. Guðmundur sætti rannsókn í fjölda mála eftir hrunið en var ákærður í einu þeirra og á endanum sýknaður, en í því máli þótti raunar sannað að ásetningur hans hafi staðið til þess að misnota aðstöðu sína. Eftir að þessi sýknudómur féll þá leiddi rannsókn á einkavæðingu Búnaðarbankans, á sínum tíma, í ljós að Guðmundur tók þátt í fléttu sem gekk út á að láta líta út fyrir að þýskur banki hefði tekið beinan þátt í kaupum á Búnaðarbankanum, af íslenska ríkinu.

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins og einn þingmaður Miðflokksins hafa lagt tillöguna fram á Alþingi en fyrsti flutningsmaður tillögunnar er Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður fyrrnefnda flokksins.

Guðmundur segir í sinni umsögn um tillöguna að hann hafi persónulega reynslu af rannsóknum embættis sérstaks saksóknara og þeirra embætta sem síðar tóku við málum þess. Frá árinu 2010 hafi hann sætt rannsóknum í um 15 málum og verið yfirheyrður ítrekað. Eitt málanna hafi leitt til ákæru, en því lokið með sýknu í Hæstarétti árið 2014. Öðrum málum hafi verið lokið án ákæru gagnvart honum, því síðasta árið 2019.

Guðmundur var ásamt Lárusi Welding, fyrrum bankastjóra Glitnis, ákærður fyrir umboðssvik í svokölluðu Vafningsmáli. Fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur neitaði Guðmundur allri sök og sagði málið hafa fengið mjög á sig og fjölskyldu sína.

Sakfelldur og svo sýknaður

Lárus og Guðmundur voru sakfelldir í Héraðsdómi Reykjavíkur en sýknaðir í Hæstarétti árið 2014.

Samkvæmt fréttum RÚV frá þessum tíma þá voru Lárus og Guðmundur ákærðir fyrir umboðssvik, með því að hafa misnotað aðstöðu sína og stefnt fjárhag Glitnis í hættu þegar þeir samþykktu að bankinn veitti fjárfestingafélaginu Milestone, sem var í eigu systkinanna Karls Wernerssonar, Ingunnar Wernersdóttur og Steingríms Wernerssonar, peningamarkaðslán í febrúar 2008. Ástæða lánveitingarinnar var sú, að bandaríski bankinn Morgan Stanley hafði gjaldfellt lán til fyrirtækisins Þáttar sem Milestone var í ábyrgð fyrir og var með veði í hlutabréfum í Glitni. Lánið hafi átti að greiðast fyrir klukkan þrjú 8. febrúar og verið ákveðið að Glitnir myndi lána nýju fyrirtæki, Vafningi, andvirði lánsins eða 102 milljónir evra sem færu í að greiða skuldina við Morgan Stanley. Það hafi hins vegar ekki tekist að afgreiða það lán og úr orðið að Glitnir hafi veitt Milestone peningamarkaðslán upp á 102 milljónir evra, sem Vafningur hafi greitt 11. febrúar 2008.

Héraðsdómur Reykjavíkur hafi komist að þeirri niðurstöðu í desember 2012 að með þessu hefðu þeir Lárus og Guðmundur gerst sekir um misnotkun og umboðssvik og hætta hefði verið á minniháttar fjártjóni. Þeir hafi því verið dæmdir í 9 mánaða fangelsi þar af 6 skilorðsbundna. 

Í sýknudómi Hæstaréttar hafi hins vegar komið fram að enginn vafi léki á að ásetningur Lárusar og Guðmundar hefði staðið til þessarar misnotkunar. Hins vegar hafi skilyrði þess að sakfellt væri fyrir umboðssvik verið að þegar ekki lægi fyrir að tjón hafi orðið, að með henni hafi verið valdið verulegri fjártjónshættu. Ákæruvaldið hafi ekki sýnt fram á að háttsemi Lárusar og Guðmundar hafi falið í sér slíka áhættu fyrir bankann og því hafi skilyrðum til þess að þeim yrði gerð refsing ekki verið fullnægt. 

Fléttan 

Nokkrum árum fyrir hrunið kom Guðmundur að einkavæðingu Búnaðarbankans en hann starfaði þá sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins Eglu. Stjórnarformaður þess var Ólafur Ólafsson, sem nýlega tilkynnti um sölu á hlut sínum í Samskipum til spænsks félags, en hann hlaut eftir hrunið fangelsisdóm fyrir hlut sinn í máli sem snerist um að láta líta út fyrir að Mohammed Al-Thani, sonur þáverandi emírsins af Katar og bróðir núverandi emírs, væri að kaupa hlut í Kaupþingi en raunin var að kaupin voru fjármögnuð á laun af bankanum. 

Eins og mörgum er kunnugt varð Búnaðarbankinn eftir einkavæðingu að Kaupþingi sem féll síðan í bankahruninu en á rústum þess var Arion banki reistur.

Í fréttum Stundarinnar var fjallað árið 2017 um niðurstöður Rannsóknarnefndar Alþingis um einkavæðingu Búnaðarbankans. Egla hafi verið stærsta félagið sem tók þátt í kaupunum á nær helmingshlut ríkisins í Búnaðarbankanum árið 2002. Rannsókn nefndarinnar hafi leitt í ljós að Ólafur og Guðmundur nýttu skattaskjól til að fela raunverulega slóð eignarhaldsins og láta líta út fyrir að þýski bankinn Hauck & Aufhäuser væri aðili að kaupunum. Þar að auki hafi milljarðar króna runnið til félags í skattaskjóli en eignarhald þess félags var óþekkt.

Segir enn fremur að Guðmundur hafi átt virkan þátt í gerð leynilegu baksamninganna við Hauck & Aufhäuser og verið á sama tíma einn helsti samningamaður hins svokallaða S-hóps við framkvæmdanefnd um einkavæðingu um kaupin á Búnaðarbankanum. 

Gögn rannsóknarnefndarinnar hafi sýnt að Guðmundur hafi komið upplýsingum og gögnum úr samningaviðræðum framkvæmdanefnd um einkavæðingu, þar meðal upplýsingum um verð þegar samið hafði verið um það atriði, á framfæri við þá sem stóðu með honum að gerð baksamningana við Hauck & Aufhäuser.

Rannsókn

Í umsögn Guðmundar um þingsályktunartillöguna um rannsókn á störfum réttarvörslu- og eftirlitsaðila í kjölfar bankahrunsins segir meðal annars að mikilvægt sé að við þessa rannsókn verði kannað hvort rannsóknaraðilar hafi gætt hlutlægnisskyldu við öflun og mat sönnunargagna. Sérstaklega verði skoðað hvort skýringar sakborninga og gögn sem hafi getað mælt gegn grunsemdum hafi verið rannsökuð með sambærilegri nákvæmni og gögn sem hafi stutt þær. 

Guðmundur hvetur einnig til þess að kannað verði hvaða viðmið lágu til grundvallar ákvörðunum um að hefja, halda áfram og ljúka rannsóknum. Hann segir mikilvægt  að rannsóknin einskorðist ekki við mál sem leitt hafi til ákæru eða dóms. Rannsóknir sem felldar voru niður geti ekki síður varpað ljósi á verklag, ákvarðanatöku og eftirlit með starfsemi rannsóknaraðila.

Guðmundur vill einnig að kannað verði hvernig réttindi einstaklinga voru tryggð við yfirheyrslur, breytingar á réttarstöðu og langvarandi rannsóknir. Við mat á framkvæmd sakamálarannsókna verði einnig horft til þeirra verulegu áhrifa sem langvarandi rannsóknir geti haft á atvinnu, orðspor, fjárhagslega hagsmuni og einkalíf einstaklinga.

Segir Guðmundur að lokum að hann hvetji Alþingi til að samþykkja tillöguna og óski eftir að rannsóknin nái með skýrum hætti til hlutlægni rannsókna, meðferðar sönnunargagna, forsendna ákæruákvarðana, málshraða og mála sem felld voru niður án ákæru. Markmið rannsóknarinnar verði að vera að leiða í ljós hvort kerfisbundnir annmarkar hafi verið á framkvæmd sakamálarannsókna og leggja fram tillögur að úrbótum sem styrki réttaröryggi, ábyrgð og eftirlit með rannsóknar- og ákæruvaldi.