Nico Claux, dæmdur morðingi og mannæta, segist hafa dreymt um að borða mannakjöt frá unga aldri. Í nýju hlaðvarpi upplýsir hann hvernig mannakjöt smakkast.
Í hlaðvarpinu Anything Goes with James English greinir hinn 54 ára Frakki, Nico Claux, frá glæpum sínum og svarar spurningunni sem hann fær oftast: Hvernig bragðast mannakjöt?
„Fólk spyr mig alltaf um bragðið. En málið snerist ekki um bragðið. Ég get sagt að það bragðist eins og hrossakjöt, því á þeim tíma var ég mikið að borða hrossatartar,“ segir Claux, sem fékk viðurnefnið „Vampíran frá París.“
Með þráhyggju fyrir dauðanum
Claux segist hafa orðið heillaður að dauðanum þegar hann var 10 ára gamall, en þá lést afi hans langt fyrir aldur fram. 12 ára gamall byrjaði hann að fantasera um að borða mannakjöt eftir að hafa lesið sér til um hinn alræmda japanska morðingja og mannætu, Issei Sagawa.
Þessar hvatir fengu hann til þess að eltast við að starfa í kringum látið fólk. Á endanum fékk hann vinnu í líkhúsi. Þetta var ekki starf sem margir vildu vinna. Þar gat hann verið einsamall með líkunum og svalað fýsnum sínum.
„Ég ímyndaði mér að bíta, að rífa hold í sundur með tönnunum, geðsjúkar ímyndanir. Þetta var kynferðisleg þráhyggja,“ segir Claux. „Þegar ég hóf störf í líkhúsinu tók ég eftir því hversu auðvelt það var, þegar ég var skilinn einn eftir krufningar, að skera ræmur af holdi af líkunum og borða þær. Fyrst borðaði ég það hrátt, og síðan skar ég það í litlar ræmur, tók þær með heim og eldaði á ýmsa vegu.“
En eftir því sem á leið dugðu „ræmurnar“ sífellt skemur til að svala fýsnunum. Hann sá að hann yrði að fá stærri bita.
Snerist um kjötið
Claux tældi mann að nafni Thierry Bissonnier í október árið 1994 og skaut hann til bana. Var hann grunaður um önnur morð en aðeins tókst að sanna þetta eina á hann. Einnig játaði hann á sig að hafa borðað hluta af líkum í líkhúsinu og af líkum sem hann gróf upp í kirkjugörðum.
Claux hlaut 12 ára fangelsidóm árið 1997 en var sleppt aðeins 5 árum síðar, það er árið 2002. Sat hann inni í heildina í 7 ár og 4 mánuði.
„Markmiðið var ekki bara að myrða til þess eins að myrða. Þetta snerist um að ná í kjötið. Því ég hafði þegar verið að borða litla kjötstrimla í líkhúsinu og var farinn að finna fyrir þessari þrá,“ segir Claux. „Fyrir mér snerist þetta um spennuna, tilfinninguna. Eitthvað sem ég hafði aldrei upplifað áður. Þetta hélt mér stöðugt í vímu, í mikilli örvun.“