Hin dauðadæmda Christa Pike hefur óskað eftir því að fá að umgangast aðra fanga. Henni hefur verið haldið í einangrun á spítala eftir að aftaka hennar misheppnaðist.
Tímaritið People greinir frá þessu.
Lögmaður Christu Pike hefur sent inn kröfu til fangelsismálayfirvalda í Tennessee fylki um að einangrun hennar verði samstundis rofin. Pike hefur verið í einangrun á spítala síðan hún var flutt þangað meðvitundarlaus eftir misheppnaða aftökutilraun þann 30. september síðastliðinn.
Framtíð Pike er mjög óljós en Bill Lee fylkisstjóri hefur sett tímabundna stöðvun á allar aftökur í fylkinu. Hann segist hins vegar gera ráð fyrir að dauðadómur hennar haldi.
Í kröfu lögmanna hennar segir að hún sé í ótímabundinni einangrun og geti ekki hitt aðra fanga. Þetta sé brot á samkomulagi sem var gert árið 2024 um að rjúfa einangrun hennar árið 2024. En fram að því samkomulagi hafði Pike verið haldið frá öðrum föngum samfellt í 30 ár.
Segir að Pike vilji geta unnið, borðað og stundað líkamsrækt með öðrum konum í fangelsinu. Sem og að eiga félagsleg samskipti. Kemur fram að Pike megi ekki einu sinni hitta aðra fanga sem dvelja á sjúkrahúsinu.
Lögmenn Pike segja að hún sé nú að ná sér af meiðslum sem Tennessee fylki ollu henni. Svo sem bruna, taugaskaða, svefntruflunum og andlegum skaða. Að einangra hana valdi henni enn frekari skaða.