Fréttir

Þingmaður genginn í hóp örfárra Íslendinga - „Þvílík gleði með þennan tíma“

Mynd
Pawel Bartoszek

Þingflokksformaður Viðreisnar, Pawel Bartoszek, bættist í gær við hóp örfárra Íslendinga, eða þeirra sem hafa leyst rúbikskubb, einnig kallað töfrateningur, blindandi í keppni. Þingmaðurinn deildi afrekinu á samfélagsmiðlum þar sem hann sagðist stoltur af tímanum sem hann náði í keppninni sem landaði honum 3. sætinu á Íslandsmóti.

Íslandsmótið í töfrateningum fer nú fram í Háskólanum í Reykjavík en þar er keppt í ýmsum greinum, þar með talið að leysa hefðbundna töfrateninga, minni teninga og pýramídalagaða teninga (e. pyraminx).

Pawel skrifar um afrekið: „Ég bættist í kvöld við hóp örfárra Íslendinga sem leyst hafa Rúbínskubb blindandi í keppni. Þvílík gleði með þennan tíma og 3. sæti á Íslandsmóti í höfn! #AnnarsRólegVika“

Fyrr í vikunni var Pawel kosinn nýr þingflokksformaður Viðreisnar en hann tók við stöðunni af Sigmari Guðmundssyni sem er nú í veikindaleyfi frá þingstörfum.