Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins í borgarstjórn Reykjavíkur, er ekki ánægð með vinnubrögð meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks. Hún segir fulltrúa hans illa undirbúna og ósamstíga.
„Það er frústerandi að vera vinstriborgarfulltrúi þegar hægri áherslur eru við völd,“ segir Sanna í færslu á samfélagsmiðlum. „Það sem mér finnst líka erfitt er þegar vinnubrögðin eru ekki nógu góð og hlutirnir illa undirbúnir.“
Nefnir hún því til stuðnings að fulltrúar meirihlutans í forsætisnefnd borgarinnar hafi lagt til að fulltrúum í skóla- og frístundaráði yrði fækkað.
„Þeir vildu ekki lengur að fulltrúi Reykjavíkurráðs ungmenna og fulltrúi stjórnenda frístundaheimila og félagsmiðstöðva ætti sæti í skóla- og frístundaráði líkt og hefur tíðkast,“ segir hún.
Sjá einnig:
Sanna býður sig fram fyrir nýtt stjórnmálaafl
En fulltrúar meirihlutans í skóla- og frístundaráði séu hins vegar ósammála því að þessir fulltrúar missi rétt sinn til setu á fundum ráðsins með málfrelsi og tillögurétt. Því sé hún hjartanlega sammála.
„En nú erum við búin að verja miklum tíma í að ræða eitthvað sem meirihlutinn er ekki einu sinni samstíga í,“ segir hún að lokum. „Það virðist vera sem svo að meirihlutinn sé lítið í því að tala saman og undirbúa málin, heldur æði af stað án undirbúnings.“