Fréttir

Talsverðar breytingar fram undan hjá þeim sem ætla að kaupa rafbíl – Aðeins tvær vikur til stefnu

Mynd

Talsverðar breytingar verða á styrkjum til rafbílakaupa frá og með 1. nóvember næstkomandi. Styrkir vegna kaupa á nýjum rafbílum lækka um 100 þúsund krónur og jafnframt verður hámarksverð þeirra bíla sem njóta styrkja lækkað úr tíu milljónum króna í átta milljónir.

Morgunblaðið fjallar um þetta í dag og ræðir við Björn Víglundsson, framkvæmdastjóra sölusviðs bílaumboðsins Heklu. Breytingarnar hafa vakið gagnrýni innan bílgreinarinnar, ekki síst vegna þess hversu skammur fyrirvari er gefinn.

Þá lækka einnig styrkir til kaupa á innfluttum rafbílum sem hafa áður verið skráðir erlendis, að því gefnu að þeir séu skráðir hér á landi innan tólf mánaða frá fyrstu skráningu. Hámarksstyrkur vegna slíkra bíla lækkar úr 400 þúsund krónum í 320 þúsund krónur. Loks verður óheimilt að flytja styrkt ökutæki úr landi innan þriggja ára frá styrkveitingu.

Björn er ómyrkur í máli og segir hefð hafa skapast fyrir þeim ósið að gera slíkar breytingar án nokkurs fyrirvara eða fyrirsjáanleika.

„Þeir sem starfa í greininni þurfa að horfa 6-12 mánuði fram í tímann með pantanir og innflutning. Svo er fiktað í vörugjöldum og stuðningskerfum án nokkurs fyrirvara. Það er ekki einfalt að starfa innan slíks ramma,“ segir Björn sem segir óvissu ríkja um áhrif breytinganna á markaðinn.

„Eftir sem áður verður rafbíllinn, að öllu jöfnu, hagstæðari í innkaupum og rekstri fyrir viðskiptavininn en jarðefnaeldsneytisbíll. En allar kerfisbreytingar hafa að minnsta kosti einhver tímabundin áhrif. Hvort þær hafi langtímaáhrif er ekki gott að segja.“