Fréttir

Samfélagsmiðlar loga eftir ákvörðun Jóns Gnarr

Mynd
Björn Leví Gunnarsson, Guðmundur Andri Thorsson, Sigurður G. Guðjónsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Ingvar Smári Birgisson, Jódís Skúladóttir, Jón Gnarr, Egill Helgason, Guðbjörn Guðbjörnsson, Brynjar Níelsson og Ármann Kr. Ólafsson. Samsett mynd.

Samfélagsmiðlar hafa logað eftir að Jón Gnarr ákvað að segja sig úr þingflokki Viðreisnar og verða sjálfstæður þingmaður. Hann ætlar þó áfram að styðja ríkisstjórnina og starfa með henni á þingi. Jón sagði í viðtali í Kastljósi í gærkvöldi að ástæðan væri langvarandi skortur á skýrri forystu, aðstæðurnar séu óheilbrigðar og þá sé líka klíkumyndun. Líkti hann ákvörðuninni við að flytja af heimili alkahólista og í næsta hús. Nefndi hann einnig í gær að hann fengi lítinn hljómgrunn, þá sérstaklega þegar kæmi að forgangsröðun barna sem ættu í alvarlegum vanda. 

Sjá einnig: Þetta var Jón Gnarr ósáttur við

Fjölmargir hafa tjáð sig um ákvörðun Jóns á samfélagsmiðlum, sumir sjá hana sem veikleika á ríkisstjórninni á meðan aðrir setja spurningamerki við hvort þetta sé leiðin til að ná málum í gegn, aðrir vilja að þingmenn sem segi sig úr flokki eigi að hætta á þingi, aðrir styðja Jón heilshugar þar á meðal Jódís Skúladóttir, fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna, sem segir að hún tengi mikið við gagnrýni hans á forystuleysi, klíkumyndun og ákvarðanafælni.

„Láttu hvorki félaga þína né fjölmiðla segja þér né öðrum um hvað þín ákvörðun snýst. Þú skrifar þína sögu og sannleika þó að öllu verði snúið á hvolf og að líkindum þér í óhag. Áfram þingmenn sem standa með sannfæringu sinni!,“ segir hún. 

Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason rifjar upp gamansögu í tilefni tíðindanna af Jóni:

„Það er ekki nýtt að óbreyttir þingmenn finni til valda- og áhrifaleysis. Svo sætta þeir sig misjafnlega mikið við það. Kunn er sagan af þingmanninum sem á að hafa talað aðeins einu sinni í þingsal heilt kjörtímabil. Þá bað hann einhvern um að loka glugga.“

 Björn Leví Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, vísar í orð Jóns um að hann hafi komið með ákveðnar væntingar inn í þingstörfin, sérstaklega um aðgerðir í málefnum barna í vanda. „Og besta leiðin til þess að ná meiri árangri í því er að hætta í þingflokki í ríkisstjórn? Vill ekki einhver hugsa um börnin með flókinn vanda! Það er dálítið skot að segja bless við þingflokk út af þessari ástæðu sko. Ætli þeim finnist það vera sanngjörn ástæða?,“ segir Björn Leví. 

Ekki hópíþróttamaður

Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og fyrrum þingmaður, segir að stjórnmál séu hópíþrótt. „Það er alltaf hættuspil fyrir flokka að freistast til að fá til liðs við sig einstaklinga sem hafa aflað sér vinsælda á öðrum vettvangi en í stjórnmálum. Soldið eins og fá afburða snjallan stangastökkvara í fótboltalið. Hætt við að hann bara hangi frammi í leikjum og reyni að finna leiðir til að stökkva yfir markið. Og verði frústreraður þegar það er ekki í boði. Eða eitthvað. Treysti mér ekki lengra með þessa líkingu; en Jón Gnarr er góður þingmaður, sýnist mér, sem nenni þó lítið að fylgjast með pólitíkinni, þó augljóslega sé hann ekki hópíþróttamaður,“ segir Guðmundur Andri. 

 

 

Lögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson segir að Viðreisn sé í ruglinu. 

„Af viðtalinu við Jón Gnarr í Kastljósi kvöldsins verður það eitt ráðið að Viðreisn sé stjórnlaust rekald á hinu pólitíska hafi. Viðreisn virðist samkvæmt Jóni Gnarr vera á pari við Flokk fólksins í stjórn- og stefnuleysi að frátöldu því að tryggja forustunni gott viðurværi,“ segir Sigurður. 

Eftir situr Viðreisn með sárt ennið

Ármann Kr. Ólafsson, fyrrum bæjarstjóri Kópavogs, tekur í svipaðan streng og Sigmundur Davíð í sinni gagnrýni. „Held að þetta sé ein mesta fjölmiðlaumfjöllun um ekki neitt sem maður hefur orðið vitni að. Hann svararði fjölmiðlum í raun engu. "Að vera eða ekki vera". Segir sig úr flokknum, en styður ríkisstjórnin heldur sínum embættum og fær stoðþjónustu frá flokknum. Hvaða GRÍN eða GJÖRNINGUR er þetta,“ segir Ármann. „Jón Gnarr er vanur að taka sviðið og það átti svo sannarlega við í dag. Ótrúlegur náungi....... með jákvæðum formerkjum, en eftir situr Viðreisn með sárt ennið.“

Brynjar Níelsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, rifjar upp úrsögn Guðmundar Inga Kristinssonar úr Flokki fólksins fyrr á árinu: „Virðist nokkuð vinsælt að verða að stjórnarþingmenn segi sig úr þingflokkum sínum án skýringa. Hefði haldið að kjósendur þessara manna ættu rétt á skýringum umsvifalaust en ekki bíða í vikur eða mánuði,“ segir Brynjar. „Eina sem fæst upp úr þessum uppgjafarmönnum er að stuðningur þeirra við ríkisstjórnina til góðra verka verði áfram óbreyttur þótt enginn viti hver þau góðu verk eru.“

Björn Leví skaut þá á Brynjar:

„Það ætti að segja eitthvað um stjórnarandstöðuna að þingmenn sem hætta í stjórnarflokkunum vilja ekki einu sinni fara í þessa stjórnarandstöðu.“

Birgir nokkur skaut á Sjálfstæðismennina sem gagnrýnt hafa úrsögn Jóns: „En hvað með Àslaugu Őrnu, Þòrdísi Kolbrúnu og Bjarni Ben.  Hvar eru þau, og afhverju treystu þau sèr ekki til að styðja sinn flokk à þingi þràtt fyrir að hafa beðið um stuðning til þess í kosningum?”

Maður með sterkar frelsistaugar

Ingvar Smári Birgisson, lögmaður og stjórnarmaður í RÚV, bendir á að það sé sterk frelsistaug í Jóni en Jón hefur tjáð sig oft um hluti sem ættu að leyfa á Íslandi. 

Sjá einnig: Jón Gnarr vill leyfa kannabis, box, ættarnöfn og skriðdýrahald

„Þó að Jón Gnarr sé ekki eiginlegur frjálshyggjumaður þá er sterk frelsistaug í honum. Honum gremst að ríkisvaldið (kerfið) njóti forgangs fram yfir hagsmuni einstaklinga og leggur mikið upp úr borgaralegum réttindum, t.d. tjáningarfrelsi, og skilur manna best að fólk getur gert mistök og bætt sig,“ segir Ingvar Smári. 

„Viðreisn hefur einhvern veginn tekist að skilgreina sig þvert á öll þessi gildi og fest sig í sessi sem mið-vinstri kerfisflokkur. Flokkurinn hefur þar að auki baðað sig í púritanískri pólitískri rétthugsun síðustu ár með allri þeirri fordæmingu og óþoli sem því fylgir gagnvart ólíkum skoðunum.“ Lítið heyrist þá í þingmönnum Viðreisnar sem komi á óvart þar sem margir þar hafi frelsistaugar.

Kjósendur eigi skilið skýringar

Guðbjörn Guðbjörnsson, óperusöngvari, tollvörður og fyrrum áhrifamaður í Sjálfstæðisflokknum, segir að sem kjósandi Viðreisnar þá þurfi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður flokksins að svara gagnrýni Jóns.

„Þekkjandi nokkra í þingflokknum, get ég ekki ímyndað mér að þau séu ekki í liði með Gnarr að berjast fyrir hagsmunum barna í flóknum vanda. Þetta snýst um eitthvað allt annað en það. Það var ljóst þegar Besti flokkurinn/Björt framtíð gekk inn í Viðreisn að þeirra skrítnu áherslur yrðu ekki ofan á nema að litlu leyti,“ segir Guðbjörn.

„Jón Gnarr verður að vera skýrari í sínum yfirlýsingum og ekki koma með hálfkveðnar vísur. Við kjósendur Viðreisnar og stuðningsfólk eigum skilið að fá að vita hvað er á seiði, þótt við þurfum kannski á smáatriðunum að halda.“ Þar sem sé reykur, þar sé eldur.  

Sigmundur Davíð rifjar upp innhringjanda í Tvíhöfða

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og sessunautur Jóns á Alþingi, fer lofsamlegum orðum um Jón. „Einn albesti leikari Íslandssögunnar, greindur, mikill pælari og maður sem ég er alls ekki alltaf ósammála í pólitík. En ég vona og held að hann taki því ekki illa þótt ég segi að hann hefði mátt nýta minna af karakternum „óákveðna gaurnum” úr Smásálinni (í Tvíhöfða) í skýringum sínum á skiljanlegu brotthvarfi úr þingflokki Viðreisnar,“ segir Sigmundur Davíð. Fyrir þá sem ekki þekkja persónuna úr Tvíhöfða þá má hlusta á það hér en Jón leikur persónuna sem hringir inn í útvarpsþáttinn:

Jón sjálfur er sá slakasti á samfélagsmiðlum en í morgun var hann mættur sem fyrirsæta í auglýsingu ÍR fyrir jólapeysurnar í ár en Jón byrjaði að halda með ÍR í fyrra.