„Maður trúði því ekki að þetta gæti gerst. Dagana fyrir var búið að hringja í mig og Ívar líka og spyrja hvort það væri snjóflóðahætta. Við bara; „Nei nei, engar áhyggjur, við erum með svo flotta varnargarða og þeir eru búnir að sanna sig“. Sjokkið var að þetta skuli fara í höfnina, það var nógu mikið sjokk en svo þegar seinna flóðið kemur og lendir á húsi, þá bara, maður hélt að þetta myndi ekkert gerast aftur,“ segir Magnús Einar Magnússon björgunarsveitarmaður þegar hann rifjar upp björgunarstörfin í kringum snjóflóðin sem féllu á Flateyri 14. janúar 2020, snjóflóðin fóru yfir varnargarðana og annað þeirra lenti á húsi þar sem unglingsstúlka grófst undir en henni var sem betur fer bjargað.
Björgunarsveitarmennirnir Magnús Einar og Ívar Kristjánsson rifjuðu upp atburðina í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun en þeir munu að deila reynslu sinni á alþjóðlegu björgunarráðstefnunni Björgun 2026, í Hörpu um helgina. Það sem gerðist var að snjórinn sem var í hlíðinni ýtir flóðinu yfir varnargarðinn. „Þegar garðarnir voru hannaðir var ekki einu sinni gert ráð fyrir að þetta gæti gerst, þetta var alveg nýtt,“ segir Magnús Einar. Ívar skaut þá inn. „Þeir klárlega sönnuðu sig, garðarnir, en sviku aðeins.“
Ónáttúrulegt hljóð
Ívar hafði verið vakandi frá því fimm um morguninn þennan dag við að moka snjó og var að fara að sofa. „Og ég heyri bara þegar flóðið fer af stað. Það fór ekkert á milli mála. Allir á heimilinu vissu hvað var að gerast. Þannig að ég hleyp út í glugga á baðherberginu hjá mér og sé þar bara snjóvegginn nálgast. Það er svona kóf sem fylgir á undan og maður á það bara koma jafnt og þétt, maður var ekki alveg viss hvort það væri að falla snjóflóð á húsið hjá mér því það hvarf svo bara allt. Þá fer ég beint út og fer niðureftir og á leiðinni hringi ég í yfirlögregluþjóninn á Ísafirði, Hlyn, og tilkynni honum um hvað er að gerast. Svo fer ég niður á höfn, þá eru kallaðar út sveitir á Flateyri og víðar,“ segir hann. „Þetta var bara risastór hvítur snjóveggur sem skall bara á gluggann hjá mér. Það kemur svona kóf á undan og höggbylgja, í mínu tilfelli heyrði ég bara þegar flekinn brotnar uppi. Þetta var svo ónáttúrulegt hljóð, en þetta er bara náttúran.“
Það voru mikil læti þegar snjóflóðið kom og skelfing greip um sig segir Magnús. „Það eru tré sem brotna og það koma litlar greinar á gluggann. Ég hleyp fram í stofu og upplifi nákvæmlega það sama og Ívar, þetta kóf sem er yfir öllu og klísturssnjór á glugganum. Maður sá ekkert annað en það,“ segir hann.
Ívar segir að miðað við reynsluna þá hafi þau ekki átt von á því að neitt hafi lent undir snjónum. „Svo þegar við komum niður á höfn þá var ljóst að allir bátarnir voru farnir í hafið. Flestallir á hvolfi í höfninni, gríðarleg eyðilegging. Sjórinn sem gekk upp á aðalgötuna var ca. 60-70 sentimetra djúpur. Við vorum að keyra niður götuna í sjó.“
38 mínútur
Þegar verið var að undirbúa rýmingu þá kemur símtal um að seinna flóðið sé fallið. „Þá er rifið í gang og við brunum uppeftir í leit að stúlkunni,“ segir Ívar. Magnús sagði þá: „Við hættum öllu öðru.“
Um leið og þeir komu að húsinu var móðir stúlkunnar að hjálpa yngri börnunum út um glugga. „Flóðið skipti húsinu í tvennt, þannig að hún þurfti að fara út um stofugluggann sem var brotinn,“ segir Magnús. Farið var með yngri börnin til nágrannanna. „Svo sýnir hún okkur hvar herbergið hennar var, þar var mesti snjórinn í húsinu.“ Þá var farið að moka.
„Þetta verður fljótlega eins og steypa,“ segir Ívar um snjóinn, það var mjög erfitt að moka. Þá var líka þröngt þannig að til að moka snjónum út þurfti að moka af ganginum og þá aðrir að moka honum út. Það voru tvö teymi sem fóru sitt hvorum megin að herberginu til að byrja með. „Hún hefði frekar viljað fá í sig skóflu þannig að það var bara mokað og mokað og mokað,“ segir Magnús. Ívar segir að það nokkrum sinnum verið mokað í eitthvað mjúkt. „Þeir komu niður á andlitið hennar fyrst og þá var hún meðvitundarlaus. Við héldum áfram að moka af henni.“
Magnús segir að þetta hafi allt tekið 38 mínútur. „Frá því að við komum uppeftir og þangað til við erum búin að finna hana.“
Ívar segir að hver mínúta hafi verið heil eilífð. „Þetta er gríðarlega erfitt. Þú ert að moka sama snjónum þrisvar sinnum kannski og mannskapurinn var alveg búinn á því.“
Magnús segir að það hafi ekki mátt meiri tími líða. „Sem betur fer komum við að andlitinu fyrst. Herbergið var fullt upp í þak af snjó. Ef við hefðum fengið lappirnar fyrst og eiga þá eftir að moka hana upp.“
Ívar segir að stúlkan hafi komist til meðvitundar þegar verið var að klára að ná henni upp. „Þá öskrar hún ógurlega. Þvílík öskur,“ segir hann. „Þá fyrst létti mönnum. Það er lagi með hana.“
Magnús segir að það hafi ekki verið fyrr en seinna sem hann hafi áttað sig á hvað þau höfðu gert, þetta sé björgunarsveit sem sé að hluta til upp á félagsskapinn og það séu ekki allir á stöðugum námskeiðum. „Við björguðum þarna mannslífi.“