Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur gefur útgöngu Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar falleinkunn og kemur fram með spádóm um hvað muni koma í kjölfarið.
Fjöldi manns hefur tjáð sig um ákvörðun Jóns en Haukur en óvenju harðorður í garð framgöngu Jóns.
Sjá frétt: Samfélagsmiðlar loga eftir ákvörðun Jóns Gnarr
Jón sagði í viðtali í Kastljósi í gærkvöldi að ástæðan væri langvarandi skortur á skýrri forystu, aðstæðurnar séu óheilbrigðar og þá sé líka klíkumyndun. Líkti hann ákvörðuninni við að flytja af heimili alkahólista og í næsta hús.
Haukur segir að um daginn í gær hafi hann skilið málið þannig að Jón hafi ákveðið að segja sig úr þingflokknum vegna skipulagsvanda.
„Í Kastljósi kom hins vegar annað fram hjá Jóni, þ.e. einkum dylgjur um einstaklinga, þingflokkinn og flokksforystuna, án þess að þær væru útskýrðar betur svo nokkru næmi,“ segir Haukur og hraunar yfir Jón.
„Menn verða annað hvort að tala skýrt þegar þeir fara með hnífinn í bakið á samstarfsfólki sínu - eða bara að velja að þegja. Dylgjurnar voru svo rækilega undir beltisstað og fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna að ég fjalla ekki frekar um brotthvarf Jóns úr Viðreisn.“
Kemur hann svo með spádóm um framhaldið:
„Nema hvað ég spái að við eigum eftir að sjá röð af popúlískum málum frá honum - sem hann nær auðvitað ekki fram með einn - og hann á fljótlega eftir að bregðast ríkisstjórninni í sífellt fleiri tilvikum og svo flokknum sínum fyrrverandi.“