Fréttir

Fulltrúi á ASÍ þinginu sagður hafa sagt hommabrandara í ræðustól – Líkti Vilhjálmi og Bjarna Ben við persónur úr Brokeback Mountain

Mynd
47. þing ASÍ var haldið fyrir luktum dyrum. Mynd: DV/KSJ

Páll Heiðar Magnússon Aadnegard, fulltrúi VM – Félags vélstjóra og málmtæknimanna, á ársþingi ASÍ, er sakaður um fordómafullt tal og hommabrandara á þinginu. Er hann m.a. sagður hafa líkt meintum kærleikum Vilhjálms Birgissonar, formanns Starfsgreinasambands Íslands og Verkalýðsfélags Akraness, og Bjarna Benediktssonar, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, við ástir aðalpersónanna í kvikmyndinni Brokeback Mountain sem fjallar kúreka sem fella hugi saman. 

Þetta herma heimildir DV, sem og að púað hafi verið undir ræðu Páls. Sæþór Benjamín Randalsson, varaformaður Sósíalistaflokks Íslands og stjórnarmaður í Eflingu, tjáir sig einnig í þessa veru á Facebook-síðu sinni, þar sem hann segir að Páll hafi verið sviptur málfrelsi á fundinum: 

„Á ráðstefnunni réðst maður ítrekað á stéttarfélagið mitt og kvenkyns leiðtoga þess. Fundarstjóri hafði þegar verið minntur á að framfylgja reglum gegn persónulegum árásum, ekki bara segja okkar hlið að vera hljóð. Maðurinn gerði síðar hommafóbískan brandara um karlkyns leiðtoga og formann samtök atvinnulífsins. Stéttarfélagið okkar baulaði og krafðist þess að fundarstjóri gripi inn í; fundarstjóri sagði okkur fyrst að vera hljóð, en eftir smá þögn sagði hann loksins að það væri óviðeigandi og hélt atkvæðagreiðslu um að svipta maðurinn málfrelsi. Flestir kusu með því, sumir sátu hjá til að forðast að taka afstöðu og sex eða sjö kusu á móti - allir frá hærra launaðar stéttarfélögum.“

Sæþór upplýsir í ummælum undir færslunni að þessi maður hafi verið áðurnefndur Páll. 

DV hafði samband við forseta þingsins, Finnboga Sveinbjörnsson, formann VerkVest. Hann sagðist ekki tjá sig um einstök mál á þinginu en benti á að ítarleg skýrsla yrðin gefin út um þingið á næsta ári. 

DV hafði einnig samband við Pál Heiðar Magnússon Aadnegard og bar undir hann þessar ásakanir. Hann vildi ekki tjá sig um málið.