Fréttir

Breyttu skrifstofuhæð í lasertag-leikvang

Mynd
Lydía Dögg Egilsdóttir, Eyjólfur Jóhannsson, Sigurður Ólafsson, Ísleifur Örn Guðmundsson, Lena Rut Ævarsdóttir, Brynjar Örn Sigurðsson og Sigurjón Halldórsson voru Tyggjótöffararnir 

Starfsfólk Ofar gerði sér glaðan dag og nýtti sér breytingar á skrifstofuhúsnæði fyrirtækisins í Borgartúni 37, eftir að nokkur fyrirtæki fluttu starfsemi sína þaðan í sumar. Starfsmannafélag Ofar sá skemmtilegt tækifæri í lausu rými og ákvað að breyta einni af skrifstofuhæðunum í glæsilegan lasertag leikvang.

Mynd
Sveinn Orri Tryggvason, forstöðumaður sölusviðs, afhendir Tyggjótöffurunum vinning fyrir sigurinn.

Í samstarfi við Tag.is var hæðinni umturnað fyrir kvöldið. Veggir og hindranir voru sett upp, ljósabúnaður og reykvélar sköpuðu stemninguna og kraftmikil tónlist ómaði um hæðina. Fyrr en varði var hefðbundið skrifstofurými orðið að spennandi leikvangi þar sem ekkert var gefið eftir.

„Síðan við urðum ein eftir í húsinu hefur það verið hálfgert draugahús með felustöðum í hverju horni, og því datt mér í hug að það gæti verið skemmtilegt að nýta þessar einstöku aðstæður og fara saman í lasertag. Það er ekki á hverjum degi sem maður fær heila skrifstofuhæð undir lasertag og við ákváðum því að gera þetta almennilega: ljós, reykur, tónlist og sjö lið af keppnisglöðu starfsfólki. Stemningin var alveg frábær og keppnisskapið lét svo sannarlega ekki á sér standa. Við erum svo heppin að vera með frábæran starfsanda og fullt af snjöllu fólki sem er alltaf tilbúið að taka þátt í einhverju skemmtilegu. Svona kvöld er frábær leið til að kynnast annarri hlið á samstarfsfólkinu, því keppnisskapið leynist víða,“ segir Lena Rut Ævarsdóttir, forseti Starfsmannafélags Ofar.

Mynd
Guðjón Snær Einarsson og Tómatateymið mættu með keppnisskapið með sér þrátt fyrir saklausar blómaskreytinga.
Mynd
Reykvélar, ljós og tómir pappakassar spiluðu stórt hlutverk til að skapa rétta stemningu.
Mynd
Markús lagði mikið á sig til að ná rétta skotinu.
Mynd
Sunna Mist Sigurðardóttir skemmti sér konunglega.
Mynd
Elsa María Davíðsdóttir úr Gúrkugenginu og Gyða Þórisdóttir úr Vínberjavaktinni voru eflaust óvinir á vígvellinum en slíðruðu sverðin fyrir þessa mynd.
Mynd
Svo virðist vera sem tómt skrifstofuhúsnæði sé frábær lasertagvöllur. 
Mynd
Reykvélar sköpuðu dularfulla stemningu.
Mynd
Knútur Rúnarsson, Eiríkur Orri Agnarsson, Þorvaldur Einarsson, Friðrik Óskar Friðriksson, Jóhann Jónsson, Magnús Kristinsson og Garðar Borgþórsson voru Gulrótargengið.
Mynd
Vínberjavaktin leggur á ráðin og undirbýr árás.