Nefnd um eftirlit með lögreglu mun ekki aðhafast frekar vegna kvörtunar forsvarsmanns ónefndrar bílasölu yfir starfsháttum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Sakaði bílasalinn embættið og raunar tiltekinn lögreglumann um einelti með því að sekta ítrekað vegna bifreiða sem lagt hefði verið á lóð fyrirtækisins og tiltekinnar bifreiðar sem lagt hefði verið á landi Reykjavíkurborgar, með leyfi frá borginni.
Í kvörtuninni kom fram að umræddur lögreglumaður hafi ítrekað skráð stöðubrot vegna bifreiða sem væru á lóð fyrirtækisins, á þeim svæðum sem notuð hafi verið fyrir bílastæði í meira en áratug. Sagði bílasalinn að á sama tíma virtust stöðubrot almennt ekki koma þessum lögreglumanni við að minnsta kosti ekki þau sem væru í götunni fyrir ofan bílasöluna. Þá hafi umræddur lögreglumaður skráð stöðubrot og skrifað sektarmiða vegna einkennismerkis bílasölunnar sem hafi verið lagt á svæðinu í ákveðinn reit frá því starfsemin hófst á þessum stað. Hefði bílasalann leyfi fyrir merkinu en hvernig merkið nákvæmlega er kemur ekki fram en af samhenginu má ráða að um sé að ræða gamla bifreið.
Er síðan haft eftir bílasalanum:
„Um algjörlega óþörf afskipti umrædds lögreglumanns er að ræða af mér og fyrirtæki mínu er þess farið á leit að umræddur lögreglumaður snúi sér að öðrum verkefnum, þar sem þörf krefur en sé ekki að abbast upp á friðsaman og löghlýðinn borgara gjörsamlega af ástæðulausu.“
Bílastæðasjóður
Nefnd um eftirlit með lögreglu óskaði eftir nánari upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Í svari hennar kom fram að lögreglumaðurinn hafi samkvæmt kerfum lögreglu sektað bifreiðar í eigu bílasölunnar þrisvar sinnum.
Í málum af þessu tagi sé um svokallaða magnskráningu að ræða, lögreglumenn leggi á sektir fyrir Bílastæðasjóð Reykjavíkurborgar, um sé að ræða svokölluð stöðubrotagjöld. Færu skráningar og innheimta til Bílastæðasjóðs og því væri ekki um hefðbundna vettvangsskýrslu að ræða í málunum. Settir séu miðar á bifreiðarnar sem merktir væru bílastæðasjóði og þar væru leiðbeiningar um hvernig hægt væri að andmæla álögðum sektum.
Sagðist lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ekki hafa upplýsingar um hvort að bílasalinn hafi lagt fram slík andmæli. Bílasalinn hafi ekki framvísað heimild frá Reykjavíkurborg sem sýni heimild hans til að geyma bifreið sína á grasbala sem væri í eigu borgarinnar, er þar væntanlega vísað til áðurnefnds einkennismerkis bílasölunnar.
Segir enn fremur í svörum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að aðstoðaryfirlögregluþjónn í umferðardeild hafi margsinnis rætt við bílasalann í síma og leiðbeint honum um hvernig leggja mætti fram andmæli til Bílastæðasjóðs.
Nokkrar
Vísar lögreglan einnig til þess að samkvæmt Borgarvefsjá Reykjavíkurborgar væru þó nokkrar bifreiðar sem virtust vera á vegum bílasölunnar staðsettar á borgarlandi, þegar myndin í vefsjánni var tekin. Áðurnefndri bifreið, sem líklega er einkennismerki bílasölunnar, væri iðulega lagt í borgarlandinu á grasbala en væri upp við hús á lóðinni þegar myndin var tekin sem lögreglan hefði ekki upplýsingar um hvenær var.
Taldi embættið að afskiptin af bílasalanum gætu ekki flokkast undir einelti sem þyrfti sérstakra skýringa við.
Nefnd um eftirlit með lögreglu segir að lagt hafi verið fram afrit af afnotaleyfi til handa bílasölunni af borgarlandi þar sem veitt væri leyfi til að leggja áðurnefndri bifreið til sýnis.
Í niðurstöðu nefndarinnar segir að lögreglan hafi í málinu aðhafst innan þeirra heimilda sem henni séu veittar með lögreglulögum, auk umferðarlaga. Telur nefndin að ekki sé um að ræða mögulega refsiverða eða ámælisverða háttsemi starfsmanna lögreglu, því sé ekki tilefni til að aðhafast frekar vegna erindisins.
Með vísan stjórnsýslulaga, er þeim leiðbeiningum komið á framfæri við bílasalann að hafa samband við Bílastæðasjóð Reykjavíkurborgar og andmæla stöðusektinni með vísan til þess afnotaleyfis sem sé í gildi fyrir umrædda bifreið.