Fréttir

Ákærður fyrir að senda fjórum konum typpamyndir

Mynd
Mynd: DV/Maggi gnúsari

Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að senda fjórum konum myndefni af getnaðarlim sínum í gegnum einkaskilaboð á samfélagsmiðlum á árinu 2024.

Ákært er fyrir brot gegn blygðunarsemi en héraðssaksóknari er ákærandi. Manninum er gefið að sök að hafa sent konu í gegnum Facebook mynd af getnaðarlimnum um mitt sumar það ár, og síðan, seint í nóvember, sent henni 14 sekúndna myndband með sama myndefni. 

Hann er sakaður um að hafa sent annarri konu tvær myndir og 11 sekúndna myndband, einnig í gegnum Facebook. Þriðju konunni sendi hann 15 sekúndna myndband af limnum í október, einnig í gegnum Facebook. 

Hann sendi síðan í gegnum Instagram tvær myndir til fjórðu konunnar. 

Í ákærunni segir að ákærði hafi með þessari háttsemi sýnt konunum ósiðlegt athæfi sem var til þessa fallið að særa blygðunarsemi þeirra.

Tvær af brotaþolunum krefjast miskabóta frá manninum, önnur fer fram á 700 þúsund krónur en hin 1,5 milljónir. 

Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness fimmtudaginn 15. október en þinghöld eru lokuð.