Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjaness sem hafnaði kröfu manns, sem vikið var úr starfi sínu sem flugmaður, um 78,9 milljóna króna bætur úr skírteinistryggingu, auk dráttarvaxta. Var manninum sagt upp störfum eftir að ýmis konar atvik komu ítrekað upp í kjölfar óhóflegrar áfengisneyslu hans. Vildi hann meina að ekki hefði verið tekið tillit til þess að hann hefði verið greindur með ADHD sem skýrði hömluleysi hans sem ýtti undir drykkju. Rétturinn sagði hins vegar greiningu sem maðurinn lagði fram ekki duga til og að skjal frá sálfræðingi sem hann hafi fyrst lagt fram fyrir Landsrétti breytti engu um það.
Nafn mannsins kemur ekki fram og heldur ekki nafn fyrirtækisins sem hann stefndi en gera verður ráð fyrir að þar sé um flugfélag að ræða
Málavöxtum er lýst all ítarlega í dómi Héraðsdóms Reykjaness.
Þar kemur fram að maðurinn hafi starfað sem flugstjóri hjá flugfélaginu frá 2004 þar til honum var sagt upp árið 2022 vegna hegðunarbrota. Honum hafði upphaflega verið sagt upp 2020 eftir að lögregla þurfti að hafa afskipti af honum vegna ölvunar, þar sem hann dvaldi á vegum fyrirtækisins. Hann náði hins vegar samkomulagi við mannauðsstjóra um að uppsögnin yrði dregin til baka gegn því að hann uppfyllti ákveðin skilyrði. Í samkomulaginu var vísað til áminningar sem maðurinn hafði fengið í starfi vegna ítrekaðra brota tengdum áfengisneyslu hans.
Áfengið
Með samkomulaginu viðurkenndi maðurinn að hann ætti við áfengisvandamál að stríða og samþykkti hann að fara í leyfi frá störfum til að leita sér aðstoðar. Þegar hann kæmi aftur til starfa yrði það sem flugmaður en ekki lengur sem flugstjóri. Kom fram í samkomulaginu að kæmu aftur upp atvik tengd áfengisneyslu mannsins yrði honum tafarlaust sagt upp. Sú varð raunin árið 2022 eftir atvik í vinnuferð á vegum fyrirtækisins þar sem maðurinn hafði mætt ítrekað ölvaður í móttöku hótelsins og sýnt óásættanlega hegðun gagnvart öðrum gestum.
Vísaði maðurinn í að hann hefði átt mjög erfitt með strangar Covid-reglur í fyrri ferð á vegum fyrirtækisins þar sem hann hafi orðið að halda sig að mestu inni á hótelherbergi, það hafi ýtt undir ásókn hans í áfengi.
Í febrúar 2023 var síðan manninum neitað um útgáfu heilbrigðisvottorðs til þess að fá að starfa sem flugmaður, á grundvelli þess að hann hefði greinst með ADHD og byrjað af þeim sökum að taka inn lyf. Fékk hann síðan vottorð um greininguna hjá geðlækni í maí 2023. Vildi maðurinn meina að drykkja hans stafaði af hömluleysi og hvatvísi frekar en áfengisfíkn. Lyfjataka hafi hjálpað honum að ná betri stjórn á þessu. Vegna lyfjanna staðfesti Samgöngustofa hins vegar synjun á útgáfu heilbrigðisvottorðs og því var manninum ekki heimilt að starfa sem flugmaður.
Maðurinn krafðist í kjölfarið útgreiðslu um 78 milljóna króna úr skírteinistryggingu flugmanna. Tryggingafélag flugfélagsins hafnaði hins vegar kröfunni á þeim grundvelli að maðurinn hafi ekki afhent því umbeðin gögn.
Flugfélagið sjálft hafnaði síðan kröfunni á þeim grundvelli að þegar ADHD-greiningin lá fyrir hafi maðurinn ekki lengur verið í starfi hjá félaginu.
Ótrúverðug
Vildi flugfélagið raunar meina að greiningin væri vafasöm þar sem hún hefði legið fyrir tveimur mánuðum eftir útgáfu greinargerðar trúnaðarlæknis Félags íslenskra atvinnuflugmanna þar sem ekkert hafi verið minnst á hana. Þar að auki hefði flugmaðurinn hafið inntöku lyfsins átta dögum fyrir heilbrigðisskoðun hjá fluglækni, sem hlyti að teljast vera einkennilegt og vottorð um greininguna hafi ekki verið gefið út fyrr en tveimur mánuðum eftir skoðunina.
Flugmaðurinn höfðaði á endanum mál á hendur flugfélaginu. Annar geðlæknir var fyrir dómi fenginn til að leggja mat á ADHD-greininguna. Gerði geðlæknirinn athugasemd við að greining kollega hans hafi aðeins byggt á einu viðtali við manninn. Ráðlögð greiningartæki hafi ekki verið lögð fyrir og ekki hafi heldur verið tekin ítarleg þroskasaga og heilsufarssaga. Sagði geðlæknirinn að fyrir hefði þurft að liggja að einkenni ADHD hefðu verið komin fram fyrir 12 ára aldur og að koma þyrfti fram í greiningu á hvaða hátt einkennin væru hamlandi.
Vinkona
Héraðsdómur Reykjaness tók hins vegar undir með flugmanninum um að hann hafi enn verið starfsmaður flugfélagsins þegar greiningin lá fyrir, enda hafi uppsagnarfrestur ekki verið runnin út.
Geðlæknirinn sem gerði hina umdeildu greiningu bar fyrir dómi að hann hafi hitt manninn að beiðni móður hans, en geðlæknirinn og móðirinn höfðu verið vinir til áratuga. Geðlæknirinn sagði greiningu sína ekki hafa verið óvandaða og hann væri ekki sammála leiðbeiningum landlæknis um vinnulag við greiningu ADHD.
Héraðsdómur sagði ljóst að á þessum 18 árum sem maðurinn starfaði hjá flugfélaginu hafi ekkert heilsufarslegt hamlað því að hann hafi getað flogið. Það væri óumdeilt að ADHD hefði aldrei komið til umræðu fyrr en við umrædda heilsufarsskoðun, eftir uppsögnina. Maðurinn hafi með skömmum fyrirvara, vegna vinatengsla móður sinnar, fengið tíma hjá geðlækni sem greindi hann með ADHD en samkvæmt mati kollega hans, sem sé samhljóða leiðbeiningum landlæknis, sé greiningin haldin verulegum annmörkum. Þar að auki hafi aðrir meðferðarmöguleikar en lyfjagjöf verið til staðar en ekki látið á þá reyna en það var fyrst og fremst vegna lyfjatökunnar sem maðurinn fékk ekki heilbrigðisvottorð.
Var það því niðurstaða Héraðsdóms Reykjaness að ekki hafi tekist að sanna að maðurinn ætti rétt á þessum tæpu 80 milljónum sem hann krafðist að fá úr skírteinistryggingu.
Landsréttur tekur undir það. Í dómi réttarins kemur fram að við málsmeðferðina hafi maðurinn lagt fram vottorð frá sálfræðingi um að hann beri einkenni um athyglisbrest, ofvirkni og hvatvísi. Þessa skjals hafi hins vegar verið aflað einhliða af manninum
auk þess sem ekki hafi verið gerð mismunagreining með tilliti til annarra atriða sem gætu framkallað einkenni eða hömlun sem sé eitt af greiningarskilmerkjum ADHD hjá fullorðnum einstaklingum. Verði því ekki talið að maðurinn hafi með skjalinu sannað að hann væri haldinn veikindum í skilningi ákvæðis í kjarasamningi félags atvinnuflugmanna og flugfélagsins, um útgreiðslu skírteinistryggingar.
Landsréttur staðfestir því dóm héraðsdóms og manninum var því aftur neitað um greiðslu þeirra tæpu 80 milljóna króna sem hann krafðist.