Prinsessa í konungsfjölskyldunni í Abú Dabí fannst meðvitundarlaus af fíkniefnaneyslu úti á götu í London. Við hlið hennar lá meðvitundarlaus maður en ungabarn hennar ráfaði um göturnar.
Breska blaðið The Daily Star greinir frá þessu.
Mahrah Al Nahyan, 32 ára prinsessa (eða sjeika) frá Abú Dabí, fannst meðvitundarlaus úti á götu í vesturhluta London þann 13. júní síðastliðinn. Hún hafði tekið inn stóran skammt af fíkniefnum.
Prinsessan á þriggja ára barn sem fannst ráfandi um göturnar skammt frá. Við hlið hennar lá meðvitundarlaus karlmaður sem hefur ekki verið nafngreindur.
Var hálftíma að vakna
Lögreglan handtók prinsessuna en það tók um hálftíma að fá hana til að vakna úr fíkniefnamókinu. Hafði hún verið að taka kókaín í nokkra daga áður.
Þegar hún loksins vaknaði brást hún illa við og hrópaði á lögreglumennina: „Þetta er ekki sláturhús, hvers vegna skiptir þetta þig svona miklu máli? Hvers vegna hefurðu svona miklar áhyggjur?“
Var hún ákærð fyrir vanrækslu barns og kom fyrir dómara á þriðjudag, 13. október, þar sem reifuð voru atriði málsins. Kom fram að Mahrah hefði farið í meðferð við fíkniefnanotkun eftir að hún var handtekin.
Iðrast
Ria Pahlavanpour, saksóknari í málinu, benti á að barnið hefði verið skólaust að leika sér á hlaupahjóli á umferðarmikilli götu. Komu vegfarendur barninu til aðstoðar. Fíkniefni og hlutir til fíkniefnaneyslu fundust á móðurinni.
Konungsfjölskyldan í Abú Dabí er ein af þeim ríkustu í heimi. Auðæfi hennar eru metnar á 40 trilljónir.
Stephen Vullo, verjandi prinsessunnar, benti á að hún hefði verið edrú síðan í júlí, hefði gengist við brotum sínum og sýnt iðrun. Hún hefði ekki tekið inn kókaín þennan dag sem hún var handtekin en hafi verið mjög þreytt eftir neyslu undanfarinna daga.
Dæmd og sektuð
Var Mahrah dæmd til tveggja ára fíkniefnaendurhæfingar og sektuð um 5 þúsund pund, það er 800 þúsund krónur.
Dómarinn var harðorður í garð prinsessunnar og benti henni á að barnið hefði hæglega geta orðið fyrir bíl eða verið rænt af ókunnugum. Þá hljóti það að hafa slæm áhrif á það að sjá móður sína og vin hennar meðvitundarlaus úti á götu.