Fréttir

Mörg ár liðu áður en Hrannar opnaði sig um missi á meðgöngu: „Þessi tvö líf sem kviknuðu en fengu aldrei að draga andann“

Mynd

„Eftir að dóttir mín lést þá misstum við barnsmóðir mín tvö fóstur snemma á meðgöngu. Á þeim tíma var ég enn að vinna úr dótturmissinum og gerði mér líklega ekki fyllilega grein fyrir þeim missi sem ég hafi orðið fyrir.

Það var ekki fyrr en mörgum árum seinna sem ég byrjaði að tala um upplifun mína af því að missa á meðgöngu. Ég gerði lítið úr honum innra með mér til að byrja með en fann mig samt alltaf hugsa aftur til þess sem gæti hafa orðið. Þessi tvö líf sem kviknuðu en fengu aldrei að draga andann eða finna þá ást sem ég fann til þeirra,“

segir Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson, hópstjóri og jafningi hjá Sorgarmiðstöðinni, í grein sinni.

Mynd
Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson.

„Við sem náum fullorðins aldri lendum öll í því að missa einhvern sem er nákominn okkur. Við lifum foreldra okkar og samferðafólk fellur frá, allt er þetta gangur lífsins. Við samþykkjum okkar hlutskipti að vera manneskjur með okkar upphaf og endalok. Mörg okkar upplifa líka missi sem gengur þvert á þennan sáttmála sem við teljum að við eigum við náttúruna, við lifum börn okkar. Það er þá sem við upplifum ósanngirni, óöryggi, afneitun og margar aðrar erfiðar tilfinningar.

Ósanngirni yfir því að einhver hafi verið tekinn í burtu án þess að fá tækifæri til þess að upplifa þá sigra og fegurð sem lífið hefur upp á að bjóða. Óöryggi og efi um að eitthvað sé öruggt eða tryggt kemur upp og í sumum tilfellum verður algjört öryggisleysi.“

Hrannar segir fólk í þeirri stöðu vera í afneitun, neita að trúa því að þetta sé raunveruleikinn. „Þessar örfáu sekúndur eftir að maður vaknar og heldur að allt sé í lagi verða bestu stundir dagsins. Þessar sekúndur rétt áður en maður áttar sig á því að lífið er ekki eins og það var.“

Hvetur fólk sem orðið hefur fyrir missi að leita sér aðstoðar.

Í greininni vekur Hrannar athygli á tveimur viðburðum Sorgarmiðstöðvar nú í október: í dag 15.október er minningarstund á vegum Gleym mér ei í félagsheimili Orkuveitunnar. Þessi dagur er tileinkaður á heimsvísu þeim sem hafa misst á meðgöngu eða misst nýbura og 20. október er á dagskrá fyrsti viðburður vetrarins fyrir karlmenn sem hafa misst. 

„Þetta verkefni byrjaði í vor með viðburði í Vídalínskirkju. Aðsókn á þann viðburð var mjög góð og því viljum við í Sorgarmiðstöðinni byrja veturinn á öðru fyrirlesarakvöldi. Að þessu sinni verður viðburðurinn í húsnæði Malbygg, Skútuvogi 1H klukkan 18. Þrír karlmenn munu segja frá sinni vegferð í gegnum missi og leiðinni að góðu lífi að nýju.“

„Ég hvet alla sem hafa misst að leita sér aðstoðar því að lífið getur orðið aftur yndislegt og fallegt þrátt fyrir erfiðan missi. Það er er góð byrjun að koma, hlusta og heyra aðra segja sína sögu.“