Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, gagnrýnir harðlega kröfu Íslandspósts um að skattgreiðendur bæti fyrirtækinu kostnað vegna erlendra bréfasendinga.
Hann segir kröfuna ganga gegn ákvæðum póstlaga og dregur jafnframt í efa að raunverulegur viðbótarkostnaður fyrirtækisins sé jafn mikill og haldið er fram.
Morgunblaðið greindi frá því í síðustu viku að Íslandspóstur telji árlegan hreinan kostnað vegna óskráðra bréfasendinga frá útlöndum nema hundruðum milljóna króna. Fyrirtækið hefur óskað eftir því við Byggðastofnun að fá kostnaðinn bættan úr ríkissjóði. Um er að ræða meðal annars jólakort, sektarboð og annan bréfapóst sem berst hingað til lands.
Stórt spurningarmerki
Í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag bendir Ólafur á að samkvæmt núgildandi póstlögum sé ekki heimilt að greiða slíkan kostnað úr ríkissjóði.
„Löggjöfin gerir einfaldlega ekki ráð fyrir slíku,“ skrifar hann.
Ólafur setur einnig spurningarmerki við kostnaðarmat Íslandspósts. Hann bendir á að erlendu bréfin séu flokkuð og borin út samhliða öðrum sendingum og að stór hluti rekstrarkostnaðar fyrirtækisins myndi því væntanlega haldast óbreyttur þótt sendingarnar hyrfu.
„Vissulega myndi einhver kostnaður sparast við flokkun og meðhöndlun bréfanna, en erfitt er að sjá hvernig kostnaður sem raunverulega mætti komast hjá geti numið „hundruðum milljóna“ á ári.“
Óásættanleg krafa
Þá gagnrýnir Ólafur að kostnaðarlíkan Íslandspósts hafi ekki verið gert opinbert, þrátt fyrir að skattgreiðendur leggi fyrirtækinu til hátt í 800 milljónir króna árlega vegna alþjónustuskyldna.
Hann vísar jafnframt til kvörtunar Félags atvinnurekenda til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) vegna meintrar ólögmætrar ríkisaðstoðar við Íslandspóst. Samkvæmt greininni er rannsókn málsins í forgangi hjá stofnuninni og niðurstöðu að vænta með vorinu.
Ólafur segir kröfu Íslandspósts óásættanlega og varar stjórnvöld við því að verða við henni.
„Það er út í hött hjá stjórnendum Íslandspósts að fara fram á greiðslur frá skattgreiðendum vegna erlendu jólakortanna, sektarboðanna og alls hins, þegar lögin heimila ekki slíkar greiðslur.“
Hann bætir við að enn fráleitara væri ef stjórnvöld féllust á kröfurnar áður en niðurstaða ESA liggur fyrir.
Grein Ólafs í heild sinni í Morgunblaðinu.