Fréttir

Einmana múrari ferðaðist tvö þúsund kílómetra til að hitta draumadísina – En þá kom sannleikurinn í ljós

Mynd
Edimar ferðaðist langa leið til að hitta Jessicu.

Brasilískur múrari ferðaðist yfir tvö þúsund kílómetra leið til þess að hitta draumadísina sína. Svo komst hann að því að hún var búin til úr gervigreind.

Breska blaðið Manchester Evening News greinir frá þessu.

Edimar Rocha Martins, 49 ára múrari, taldi sig hafa fundið ástina á netinu en hún reyndist vera tálsýn. Ferðaðist hann meira en tvö þúsund kílómetra leið með rútu til að hitta hana.

Edimar fann „konu“ á netinu sem kallaði sig Jessica Oliveira. Hún bauð karlmönnum að koma og búa með sér á búgarði. Var hún með 300 þúsund fylgjendur á samfélagsmiðlum.

Einmana

Edimar er einstæðingur og hafði nýlega misst móður sína. Lífið var krefjandi og einmanalegt. Honum fannst eins og hann þyrfti nýtt upphaf til að koma sér út úr vítahringnum.

Hann hafði sendi Jessicu skilaboð og hún svaraði. Hún bauð honum að koma að hitta sig. Sagðist hún ætla að borga fyrir hann ferðakostnaðinn og uppihald þegar hann væri kominn.

Á föstudag, 9. okótber, lagði Edimar af stað frá heimaborg sinni, Imperatriz í norður Brasilíu til Belo Horizonte í suðurhlutanum. Ferðalagið tók 36 klukkutíma og hann var loksins kominn á sunnudag, 11. október.

Enginn þekkti Jessicu

Hann mætti á staðinn þar sem Jessica hafði sagt í útjaðri borgarinnar en fann ekki búgarðinn. Hann gekk um, sýndi heimamönnum myndir af Jessicu og spurði hvort þau þekktu hana en það gerði enginn. Svo fór hann að átta sig á hvað væri að gerast. Jessica væri ekki til heldur væru myndirnar af henni og myndböndin búin til með gervigreind.

„Ég var búinn að ganga um með nokkrar ljósmyndir, sýna þær og spyrja hvort einhver þekkti þessa manneskju, en allir sögðu nei,  svo mér fannst ég hafa verið blekktur,“ segir Edimar. „Stundum leiðir einmanaleiki heima fyrir til mikilla vandræða í lífinu.“

Á vonarvöl

Edimar var þegar orðinn auralaus eftir ferðalagið og þurfti að leita á náðir innflytjendaaðstoðar Belo Horizonte. Þar fékk hann mat, komst í sturtu og fékk fræðslu um svik á netinu. Að lokum var keyptur fyrir hann rútumiði heim þriðjudaginn 13. október.