Frammistaða nemenda í Reykjavík og Kópavogi í PISA 2025 var yfir landsmeðaltali á öllum þremur sviðum rannsóknarinnar, þ.e. vísindum, stærðfræðilæsi og lesskilningi. Þetta kemur fram í greiningu mennta- og barnamálaráðuneytisins en þar kemur eins fram að nemendur í Reykjanesbæ hafi staðið sig verr en nemendur gerðu að jafnaði á landsvísu á öllum þremur sviðunum og nemendur í Hafnarfirði stóðu sig verr í vísindum og lesskilningi.
Nemendur á Akureyri voru yfir landsmeðaltali í vísindum og stærðfræðilæsi og nemendur í Garðabæ stóðu sig betur en nemendur á landsvísu í stærðfræðilæsi.
Frammistaða nemenda í öðrum sveitarfélögum í heild var undir landsmeðaltali á öllum sviðum en hafa þarf í huga að þar undir falla fjölmörg sveitarfélög sem eru sum hver ólík hvað varðar stærð, staðsetningu og lýðfræðilegar breytur.
Í flestum sveitarfélögum minnkar munurinn frá landsmeðaltali eftir að leiðrétt hefur verið fyrir erlendum bakgrunni og ólíkri félags- og efnahagslegri stöðu nemenda. Munurinn í Reykjavík breytist þó lítið og nemendur þar mælast áfram yfir landsmeðaltali á öllum þremur sviðunum. Utan Reykjavíkur mælist Kópavogur eitt sveitarfélaga yfir landsmeðaltali, en þá bara í stærðfræðilæsi.
Munur á nemendum í Reykjanesbæ og nemendum á landsvísu minnkar eftir leiðréttinguna, en þar er hæsta hlutfall innflytjenda í þeim sveitarfélögum sem ráðuneytið birti upplýsingar fyrir, en smærri sveitarfélögin eru höfð saman í flokki þar sem fjöldi nemenda þar sem tóku þátt í PISA var ekki nægur til að hægt væri að greina raunverulegan mun frá tilviljun.
Hvað afburðahæfni varðar sker Reykjavík sig frá öðrum sveitarfélögum en þar mælist mun hærra hlutfall nemenda með afburðahæfni.