Fréttir

Nicole harðorð í garð frumvarps Sjálfstæðismanna – „Jafnvel fasismi í sinni tærustu mynd“

Mynd
Nicole vandar Sjálfstæðismönnum ekki kveðjuna.

Nicole Leigh Mosty, formaður Fjölmenningarseturs og fyrrverandi þingkona Bjartrar framtíðar, segir nýtt frumvarp Sjálfstæðisflokksins sýna útlendingaandúð. Samkvæmt frumvarpinu er lagt til að yfirvöld rukki fyrir túlkaþjónustu.

„Frumvarp um gjaldtöku fyrir túlkun er kynnt sem vörn fyrir íslenska tungu. Í raun sendir það innflytjendum reikninginn fyrir íslenskukennsluna sem ríkið veitti þeim ekki,“ segir Nicole í aðsendri grein með yfirskriftinni „Út­lendinga­and­úð í málverndarbúningi,“ á Vísi. Segir hún að þessi vinnubrögð hafi þegar tekið sér rætur í borgarstjórn Reykjavíkur.

Nefna ekki ástæðuna

Fyrsti flutningsmaður frumvarpsins er Diljá Mist Einarsdóttir en alls eru nöfn tíu Sþingmanna Sjálfstæðisflokksins skráð við það. Lagt er til að stjórnvöld og heilbrigðisstofnanir rukki fyrir túlkaþjónustu hvern þann sem hefur búið hér þrjú ár eða lengur.

„Greinargerðin talar um „gríðarlegan kostnað“ skattgreiðenda og um að íslenskan eigi undir högg að sækja. Þessu tvennu er stillt upp eins og það hangi saman. Ég hef aldrei verið meira ósammála þar sem það gerir það ekki,“ segir Nicole.

Nefnt er að heilbrigðiskerfið hafi varið 1,6 milljörðum króna í túlkaþjónustu árin 2020 til 2024. Nicole bendir hins vegar á að flutningsmenn frumvarpsins skauta fram hjá hvað hafi gerst á þessum árum.

„Rússland réðst inn í Úkraínu. Á sama tíma var Ísland eina ríkið í Evrópu sem veitti ríkisborgurum Venesúela viðbótarvernd nær skilyrðislaust. Umsóknir um alþjóðlega vernd náðu hámarki árið 2022, 4.518 talsins, flestar frá Úkraínu og Venesúela. Síðan hefur dæmið snúist við. Útlendingastofnun breytti mati sínu á Venesúela í apríl 2023 og umsóknum þaðan fækkaði um nærri 90% milli 2023 og 2024. Árið 2025 voru umsóknir um vernd alls 1.749, um 60% færri en metárið 2022,“ segir hún.

Tímabundinn aukning

Kostnaðaraukinn hafi því verið tímabundinn og að stórum hluta vegna stríðs og stjórnvaldsframkvæmdar sem þegar sé afnumin.

„Við tókum á móti fólki á flótta úr stríði og efnahagshruni, eins og siðað samfélag gerir. Og hér kemur það sem greinargerðin nefnir ekki… nánast allt þetta fólk hafði búið hér skemur en þrjú ár á þeim tíma sem kostnaðurinn féll til,“ segir hún. „Frumvarpið hefði því ekki snert kostnaðinn sem það vísar til. Frumvarpið kæmi til með að bitna á öðrum, fólkinu sem hefur unnið hér og greitt skatta árum saman, án þess að ríkið hafi nokkurn tíma gert því raunhæft að læra íslensku.“

Ekki sé tilgreint hversu miklu af þessari upphæð hafi verið varið til fólks sem hafi verið hér lengur en þrjú ár og ekki er tilgreint hversu miklu hafi verið varið til táknmálstúlkunar í svari heilbrigðisráðherra frá því í fyrra sem notuð er sem grundvöllurinn fyrir þessari tölu og þar með frumvarpinu.

Skert framlög

Bendir Nicole einnig á að hér á landi greiða innflytjendur 52 þúsund krónur fyrir 40 til 60 stunda námskeið sem yfirleitt er kennt á vinnutíma. Framlög til þessarar kennslu hafa verð skert á undanförnum árum. Það þurfi mikið íslensku nám til þess að geta til dæmis rætt við lækni um einkenni og lyfjaskammta.

Sjá einnig:

Töluvert halli á erlendar konur í heimilisofbeldismálum - Fái ekki túlkaþjónustu og ofbeldismennirnir hræði þær með lygum

„Ég man eftir erlendri vinkonu sem ég fór með á bráðamóttöku vegna heimilisofbeldis. Hún hefur búið hér lengur en þessi þrjú ár og starfaði á láglaunuðum vöktum allan tímann. Samkvæmt frumvarpinu fær hún reikning fyrir túlkinn. Segjum svo að þetta frumvarp verði að lögum og hún hafi ekki efni á honum, þarf hún að lýsa áverkunum á máli sem hún ræður ekki við? Eða, sem er líklegra, gerandinn túlkar fyrir hana eða barnið hennar,“ segir Nicole. „Hvernig kæmi hún til að skilja það að Kvennaathvarfið og Bjarkarhlíð eru til, hvað nálgunarbann er, eða að hún eigi rétt á að fara frá geranda?“

Útilokun og fasismi

Segir Nicole þetta frumvarp ekki gert til þess að vernda íslenskuna. 

„Við skulum kalla hlutina sínum réttu nöfnum. Þetta frumvarp og tillaga vernda ekki íslenskuna. Þau koma til með að fæla fólk frá heilbrigðisþjónustu, skólum og stjórnsýslu, einmitt þeim stöðum þar sem það heyrir íslensku og lærir hana,“ segir hún. „Ef markmiðið er að nota opinbert fé til að vernda íslenskuna er aðeins eitt svar: að fjárfesta í íslenskukennslu. Ef hið óyfirlýsta markmið er hins vegar að halda innflytjendum frá þjónustu, og þar með frá tungumálinu, er þetta ekki málstefna heldur útilokun. Að taka fagnandi við vinnuafli fólks og skattfé en halda því markvisst utan samfélagsins og skerða réttindi þess er ein versta tegund af aðskilnaðarstefnu og jafnvel fasismi í sinni tærustu mynd.“