Frambjóðandi Demókrataflokksins í Arizóna fylki greinir frá því að henni hafi verið nauðgað í kosningabaráttu. Ókunnur maður rotaði hana og byrjaði síðan að athafna sig.
Miðillinn TMZ greinir frá þessu.
Bernadette Greene-Placentia, frambjóðandi Demókrataflokksins í áttunda kjördæmi Arizóna fylkis til fulltrúadeildar, greinir frá nauðgun í kosningabaráttu. Árásin átti sér stað aðfaranótt 14. ágúst síðastliðinn í borginni Sun City, norðvestan við Phoenix.
Tveir menn
Bernadette segist hafa verið að laga brotið auglýsingaskilti á bílastæði þegar ráðist var á hana. Var hún slegin í höfuðið og missti þá meðvitund í stutta stund.
Þegar hún vaknaði var ókunnur maður ofan á henni að brjóta á henni kynferðislega. Hún fann nístandi sársauka neðanbeltis og sá manninn draga út skaufann. Kallaði hann hana tík og sagði að hún væri „ekki mjög góður dráttur.“
Þá kom annar maður og reyndi að þvinga fótleggina á henni lengra í sundur. Hún sparkaði í hann og þá sagði hann: „Ekki þess virði.“ Fóru þeir síðan.
Man lítið
Bernadette segist hafa getað keyrt heim en hún muni mjög lítið hvað hafi gerst eftir þetta.
„Þetta eru bara þessar örlitlu glætur sem ég man eftir,“ segir hún. „Þó ég vilji helst ekki muna, hef ég reynt mjög, mjög mikið að muna fleiri atriði. En þetta er staðan hjá mér.“
Bernadette kærði málið til lögreglunnar í Maricopa sýslu þann 31. ágúst. Rannsókn málsins stendur yfir að sögn lögreglu.