Fjölmiðlar hafa í dag greint frá skemmdaverkum á bílum í Vesturbæ Reykjavíkur en hakakross var rispaður í hurð eins bílsins. Þrír bílar voru rispaðir og leitar lögregla skemmdarvarganna eða skemmdarvargsins.
Sjá einnig: Leita að skemmdarvörgunum sem rispuðu þrjá bíla – Hakakross á bílhurðina
En bílar eru rispaðir blygðunarlaust víðar í borginni. Kona sem býr í Stórholti birti meðfylgjandi myndband af ungmenni sem rispaði alla vinstri hlið bílsins hennar á föstudagsnótt. Sami aðili rispaði annan bíl í götunni. Tveimur dögum síðar var einn annar bíll í nágrenninu rispaður en það var gert um hábjartan dag og sá einstaklingur reyndi ekki að hylja andlit sitt og sést það á myndbandi sem birt hefur verið á Facebook.
Konan segir í samtali við DV að hún hafi tilkynnt málið til lögreglu og það hafi einnig að a.m.k. annar hinna tveggja sem varð fyrir skemmdarverkum gert. Tjónið er tilfinnanlegt þrátt fyrir kaskó-tryggingu því sjálfsábyrgðin nemur 100 þúsund krónum. Hún telur málið skammt komið í rannsókn lögreglu.