Fréttir

Margrét Löf heldur arfinum eftir föðurinn sem hún myrti

Mynd

Landsréttur staðfesti í dag 16 ára fangelsisvist Margrétar Höllu Hansdóttur Löf sem banaði föður sínum á heimili fjölskyldunnar við Súlunes á Arnarnesinu í apríl á síðasta ári. Frá þessu greinir Vísir. Dómurinn var kveðinn upp fyrir luktum dyrum og hefur ekki verið birtur. Eins vísaði Landsréttur kröfu hálfbróður Margrétar, um að hún yrði gerð arflaus, frá dómi. Það sama hafði héraðsdómur gert með vísan til þess að krafan þyrfti að koma frá ákæruvaldinu, sem hún gerði ekki.

Faðir Margrétar lést að morgni föstudags þann 11. apríl árið 2025, á 80 ára afmæli sínu, eftir að Margrét hafði misþyrmt honum og móður sinni í um það bil 10 klukkustundir. Hálfbróðir Margrétar, samfeðra, krafðist þess að ákveðið yrði með dómi að systir hans hefði fyrirgert rétti sínum til arfs samkvæmt erfðalögum, en héraðsdómur taldi að samkvæmt lögum um meðferð sakamála þurfi slík krafa að koma frá handhafa ákæruvalds. Slíka kröfu þurfi að hafa uppi með ákæru enda teljist svipting erfðaréttar til refsikenndra viðurlaga við afbroti.

Þennan skilning virðist Landsréttur nú hafa staðfest, en eins og áður segir hefur dómurinn ekki verið birtur og því ekki hægt að fullyrða á hvaða forsendum Landsréttur vísaði kröfu hálfbróðursins frá dómi. Héraðsdómari hafði bent á að ákæruvaldið þyrfti sjálft að meta hvort farið sé fram á slíka sviptingu og fylgja slíkri kröfu eftir. Það hafi ekki verið gert í máli þessu.

Sjá einnig: Margrét ekki svipt föðurarfinum - Hundruð handskrifaðra skilaboða hennar til foreldranna vekja óhug