Fréttir

Leita að skemmdarvörgunum sem rispuðu þrjá bíla – Hakakross á bílhurðina

Mynd
Hakakross var rispaður á bílhurð.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú að skemmdarvargi eða vörgum sem rispuðu þrjá bíla í Vesturbæ Reykjavíkur. Greint hefur verið frá því að hakakross var rispaður á bílhurð eins bílsins.

„Bifreiðarnar voru kyrrstæðar í bifreiðastæðum við Flyðrugranda, Hagamel og Keilugranda þegar verknaðurinn átti sér stað. Þar var á ferðinni skemmdarvargur (eða skemmdarvargar) sem rispaði allar bifreiðarnar með lykli eða einhvers konar áhaldi - svo mikið tjón hlaust af,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.

Eru þau sem geta veitt upplýsingar um málið beðin um að hafa samband í síma 444 1000. Upplýsingum megi einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið gudmundur.petur@lrh.is Sérstaklega er óskað eftir upplýsingum um mannaferðir á þessum stöðum á áðurnefndu tímabili.

„Þau sem búa á áðurnefndu svæði eða áttu þar leið um á fyrrnefndum tíma eru góðfúslega beðin um að athuga með myndefni hafi þau aðgang að slíku, m.t.t. rannsóknarinnar. Hér er bæði átt við hefðbundnar eftirlitsmyndavélar og eins upptökur úr bifreiðum, en margar bifreiðar hafa nú slíkan búnað innanborðs,“ segir í tilkynningunni.