Fréttir

Halla: „Sjónin ætti að beinast að Samtökum atvinnulífsins sem eru að hleypa öllu í upplausn“

Mynd
Halla Gunnarsdóttir formaður VR.

„Fresturinn okkar til að slíta kjarasamningum rennur út klukkan fjögur í dag og við höfum verið algjörlega skýr í því að ef við fáum ekki lausnamiðað samtal við Samtök atvinnulífsins þá neyðumst við til að slíta samningum, og það lausnamiðaða samtal hefur ekki átt sér stað,“ segir Halla Gunnarsdóttir formaður VR í Bítinu á Bylgjunni í morgun. 

Stjórn VR ákvað í gærkvöldi að slíta kjarasamningum. Getur þetta haft ýmislegt í för með sér, þar á meðal að stéttarfélög opinberra starfsmanna fylgi í kjölfarið. 

Breiðfylkingin svokallaða og SA náðu samkomulagi sem tryggja áframhaldandi gildi þeirra kjarasamninga. 

Sjá einnig: Vilhjálmur fagnar stórum tíðindum – Þetta gæti breyst fyrir launafólk

Halla segir að fundir VR með SA hafa verið stuttir og tíðindalitlir. Í raun viti hún ekki hvar hnífurinn stendur í kúnni. „Við höfum komið að borðinu með tillögu eftir tillögu eftir tillögu að lausn. Tillögur sem kosta mikið, tillögur sem kosta lítið, tillögur sem kosta ekkert, bara alls konar lausnir en viðbrögðin hafa verið afar lítil,“ segir Halla. „Sjónin ætti að beinast að Samtökum atvinnulífsins sem eru að hleypa öllu í upplausn.“