Fréttir

Fyrrverandi landsliðskona greinir frá svimandi kostnaði við íþróttir barnanna – „Rétt tæp milljón í æfingagjöld“

Mynd
Rakel Dögg spyr hvort við séum á réttri leið þegar íþróttaiðkun sé svona dýr.

Rakel Dögg Bragadóttir, fyrrverandi landsliðskona í handbolta, greinir frá svimandi kostnaði við íþróttaiðkun barna hennar þriggja. Þarf hún að greiða hátt í milljón aðeins fyrir æfingagjöldin og þá er margt eftir, svo sem keppnisgjöld og búningar.

„Ég á þrjú börn. Þau eru 6 ára, 8 ára og 11 ára og eru öll í tveimur íþróttum.  Þetta var reikningurinn í september/byrjun okt þegar ég þurfti að greiða æfingagjöld fyrir íþróttaiðkun barnanna minna. Rétt tæp milljón í æfingagjöld,“ segir Rakel Dögg í færslu á samfélagsmiðlum.

Tæp milljón á einum mánuði

Synir hennar æfa fótbolta og handbolta og dóttir hennar æfir fótbolta og fimleika. En þegar þessi milljón er greidd þá er ýmislegt eftir eins og Rakel Dögg greinir frá.

Keppnisgjöldin eru varlega áætluð um 200 þúsund krónur, þrír fótboltabúningar kosta 55 þúsund krónur og fimleikabúningurinn verður einnig dýr.

„Samtals greiði ég 1.2 milljón króna fyrir æfingagjöld, keppnisgjöld og keppnisbúning fyrir mín þrjú börn,“ segir hún. „Svo er auðvitað falinn kostnaður. Gert er ráð fyrir að foreldrar fari með út á land þegar börnin keppa og því fylgir auðvitað mikill kostnaður. Mig langar þó ekki að taka það sérstaklega til þar sem mér þykir virkilega gaman að fylgja börnunum út á land og sé það sem mikla upplifun fyrir okkur fjölskylduna. Það vita þó allir að kostnaðurinn við að finna sér gistingu á Akureyri eða Vestmannaeyjum getur fljótt talið nokkra hundrað þúsund kalla fyrir fjölskyldu. Svo skilst mér að foreldrar þurfi að borga sinn inn á fimleikamót til að horfa á börnin sín.“

Systkina eða fjölgreinaafslættir oft ekki í boði

Segir hún að það myndi muna miklu ef félag myndi bjóða upp á systkinaafslátt eða fjölgreinaafslátt. Fá félög gera það hins vegar.

Spyr hún hvort öll þessi yfirhalning sé nauðsynleg. Þurfi ung börn að æfa fótbolta þrisvar í viku?

Mynd

„Ég á orkumikla 6 ára stelpu sem langar að æfa "allt". Ég myndi svo sannarlega vilja leyfa henni það en það er ljóst að það er hvorki fjárhagslegt svigrúm né svigrúm í stundatöflu hennar að bæta við íþróttum,“ segir Rakel Dögg. „Fjöldi sérfræðinga hafa stigið fram og talað um rannsóknir sem sýna fram á að það sé langt best fyrir börnin okkar að æfa sem flestar og fjölbreyttastar íþróttir, ekki afreksvæða íþróttirnar fyrr en seinni hluta unglingsára, leyfum þeim að prófa alls konar og hvetjum þau til að æfa fleiri en 1-2 greinar þegar þau eru að stíga sín fyrstu skref í skólakerfinu og íþróttaheiminum.“

Jöfn tækifæri fyrir alla?

Segist hún vilja hafa góða umgjörð og faglegt umhverfi í íþróttaiðkun barnanna. Hún geri sér grein fyrir að það kosti peninga.

„En það er alveg hægt að gera það með miklu lægri "overhead" kostnaði. Kostnaður sem er í flestum tilvikum alfarið velt yfir á foreldra í formi hærra æfingagjölda, hærri kostnaðar við mót osfrv,“ segir hún að lokum. „Mér finnst við vera á rangri leið. Ég hef ekki endilega bestu lausnina en finnst að það þurfi að rýna vel í þessa þróun. Erum við að veita jöfn tækifæri fyrir alla?“