Fréttir

Ferðamönnum frá Ísrael mismunað vegna uppruna á íslenskum veitingastað – Neitað um þjónustu og vísað á dyr

Mynd
Myndin er samsett

Ónefndur veitingastaður á Íslandi gerðist sekur um mismunum á grundvelli þjóðernisuppruna síðasta sumar þegar pari frá Ísrael var neitað um þjónustu. Þetta var niðurstaða kærunefndar jafnréttismála í úrskurði sem var kveðinn upp þann 11. september sl. 

Samkvæmt kæru fóru kærandi og maki hans, sem bæði koma frá Ísrael, á veitingastað þann sumarið 2025. Þar pöntuðu þau mat og greiddu 3000 krónur fyrir. Parið hafi spjallað við tvo starfsmenn og í því samtali hafi komið fram að parið er ísraelskt. Um það bil tíu mínútum síðar hafi annar starfsmaður en afgreiddi þau komið að tali við parið. Starfsmaðurinn endurgreiddi parinu 2.300 krónur og sagðist ekki ætla að veita þeim þjónustu. 

Ísraelski maðurinn vildi vita hvers vegna. Byggði ákvörðunin á einhverju persónulegu, hefði parið móðgað starfsmanninn, einhver misskilningur orðið sér stað eða væri hér um að ræða ákvörðun sem byggði á uppruna þeirra. Starfsmaðurinn mun hafa svarað því skýrt að parið hefði ekki móðgað hana, hér væri um að ræða ákvörðun sem byggði á því frá hvaða landi parið kemur. Hafi maðurinn þá bent á að hann hefði ekki fengið fulla endurgreiðslu. Starfsmaðurinn hafi brugðist við því með því að „skella 5.000 kr. á afgreiðsluborðið og skipað kæranda og maka hans að fara út.“

Fékk parið þá rétta skiptimynt til baka frá starfsmanninum sem hafði upphaflega afgreitt þau, en sá bað parið ekki um að fara heldur virtist finnast þetta allt óþægilegt. Parið óskaði starfsmönnum þá góðs kvölds og yfirgaf veitingastaðinn. 

Taldi ísraelski maðurinn að þarna hafi verið brotið gegn lögum um jafna meðferð utan vinnumarkaðar. Honum hafi verið mismunað á grundvelli þjóðernisuppruna. Atvikið hafi valdið parinu hugarangri og þau tekið það mjög nærri sér. Fannst þeim starfsmaðurinn sem mismunaði þeim ekki líta á þau sem manneskjur með ákveðin gildi heldur mismunað þeim á grundvelli þess frá hvaða landi þau komu. Maðurinn ákvað að kæra til þess að viðlíka hegðun ætti sér ekki stað aftur á þessum veitingastað og að þar yrði tekið á móti öllum viðskiptavinum af virðingu, á manneskjulegan hátt og án mismununar. 

Veitingastaðurinn gekkst við því að atvikið hefði átt sér stað og að lýsing parsins á aðstæðum væri sannleikanum samkvæmt. Baðst veitingastaðurinn afsökunar á óþægindunum sem þetta hefði valdið og sagðist taka fulla ábyrgð á því. Eftir að parinu var kynnt þessi afstaða veitingastaðarins sögðust þau taka við afsökunarbeiðninni og voru ánægð með að viðurkennt hefði verið að mismunum átti sér stað þetta júlíkvöld árið 2025. 

Kærunefnd rakti að ekki væri ágreiningur um hvort atvikið hefði átt sér stað eða ekki. Veitingastaðurinn hefði gengist við lýsingu parsins með afdráttarlausum hætti og því ljóst að hér hafi verið brotið gegn lögum. Parinu var mismunað vegna þjóðernisuppruna.