Fréttir

Botnar ekkert í framgöngunni – „Við Kristín ljúgum upp á fólk og uppnefnum það“

Mynd

Ólöf Skaftadóttir, sem heldur úti vinsæla hlaðvarpinu Komið gott ásamt Kristínu Gunnarsdóttur, segir að þær stöllur muni frekar hætta með hlaðvarpið en að skrá hlaðvarpið sem fjölmiðil að kröfu Fjölmiðlanefndar. Þetta kom fram í Reykjavík síðdegis í gær þar sem rætt var við Ólöfu og lögmanninn Hallmund Albertsson, sem gætir hagsmuna hlaðvarpsins Chess after dark.

Vinsælir hlaðvarparar héldu í gær til fundar við Loga Má Einarsson menningarmálaráðherra til að ræða þar um framgöngu fjölmiðlanefndar sem að þeirra mati hefur vægast sagt verið herská undanfarið. Á fundinum voru meðal annars þær Ólöf og Kristín ásamt Þórarni Hjartarsyni úr hlaðvarpinu Ein pæling og Birki Karli Sigurðssyni úr hlaðvarpinu Chess after dark. Þau líta ekki á hlaðvörp sín sem fjölmiðla og telja því kröfu fjölmiðlanefndar um slíka skráningu vægast sagt ósanngjarna, hvað þá sektirnar sem nefndin beitir til að þvinga fram skráningu.

Ólöf sagði í Reykjavík síðdegis:

„Við eigum öll yfir höfði okkar sekt, allt að 10 milljónum króna.“

Því hafi þau haldið til fundar við ráðherra til að kalla eftir reglugerð þar sem skýrt kemur fram að hlaðvörp séu undanþegin skráningarskyldu fjölmiðlanefndar.

„Í fyrsta lagi þá bara erum við ekki fjölmiðill. Fjölmiðlamenn segja satt og rétt frá, hafa það að leiðarljósi. Við Kristín ljúgum upp á fólk og uppnefnum það. Mér finnst líka, þar sem ég hef nú ritstýrt fjölmiðli, að þetta sé bara eðlisólíkt. Og svo er það nú bara prinsippið að við, ásamt hinum sem ég nefndi þarna áðan, erum í aukavinnu við það að þvaðra í míkrófón sem við keyptum sjálfar og ég skil ekki af hverju ég þarf að sæta einhverri ágjöf frá hinu opinbera fyrir það eitt.“

Ólöf segir að hún og Kristín séu ekki að stunda fjölmiðlun heldur „rausa eitthvað ofan í hver aðra“. Þær muni varla sjálfar í lok þáttar hvað hann átti upphaflega að fjalla um. Ólöf spyr hvort það hljómi eins og ritstýrður fjölmiðill. 

Hallmundur segist vona að Alþingi og stjórnvöld grípi inn í þetta ástand, enda hafi Logi þegar boðað að hann muni undanskilja hlaðvörp. Engu að síður haldi fjölmiðlanefnd ótrauð áfram í vegferð sinni.

Ólöf segir að Komið gott verði ekki skráð sem fjölmiðill, frekar loki þær sjoppunni.

Hallmundur segir eins að hér sé tjáningarfrelsið í húfi. Skilaboð fjölmiðlanefndar séu að fólk þurfi að tilkynna sig til stjórnvalds til að mega tjá sig. Hann leitaði að sambærilegum málum erlendis en uppgötvaði að það var erfitt að finna sambærilegan eltingarleik stjórnvalda, ekki nema í Rússlandi.

Telur Ólöf eins að fjölmiðlanefnd sé sérstaklega að beita sér gegn „vinsælum og skoðanamyndandi“ hlaðvörpum.