Fréttir

Ásmundur fengið nóg og lætur lækninn heyra það – „Bensínstittur með háskólapróf“

Mynd
Ásmundur Friðriksson.

Ásmundur Friðriksson, fyrrverandi þingmaður og stjórnarmaður í SÁÁ, fer hörðum orðum um Birgi Guðjónsson lækni í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Sakar hann Birgi meðal annars um menntahroka og fordóma gagnvart fólki sem hefur glímt við áfengisvanda.

Skrif Ásmundar eru svar við grein Birgis sem birtist í Morgunblaðinu fyrr í vikunni. Þar fjallaði Birgir um átök innan SÁÁ, brotthvarf starfsfólks og meint afskipti stjórnarmanna af heilbrigðisþjónustu samtakanna. Vakti hann meðal annars athygli á brotthvarfi Valgerðar Rúnarsdóttur læknis, sem hann sagði einn fremsta sérfræðing landsins á sviði fíknilækninga.

Birgir rifjar jafnframt upp dæmi um einstaklinga sem hafi ítrekað þurft að leita sér áfengismeðferðar og veltir því fyrir sér hvort eitthvað hafi farið úrskeiðis í starfsemi samtakanna. Hann bendir á að SÁÁ fái um tvo milljarða króna árlega frá ríkinu og telur að átökin innan samtakanna, brotthvarf starfsfólks og ágreiningur um afskipti stjórnarmanna af heilbrigðisþjónustu gefi tilefni til að endurskoða rekstur og fjármál þeirra.

Endurtekin ósannindi

Ásmundur er lítt hrifinn af skrifum Birgis eins og fyrirsögnin, „Bensínstittur með háskólapróf“ gefur til kynna. Segir hann Birgi slá um sig með mörgum prófgráðum undir grein sinni. „Fyrir mér er sú upptalning álíka merkileg og sagan af bensíntitti sem var með fimm háskólapróf en gekk illa að afgreiða bensínið þrátt fyrir allt námið,“ segir Ásmundur meðal annars.

Ásmundur segir að hann og félagar hans í stjórn SÁÁ hafi á undanförnum vikum mátt þola gagnrýni, oft réttmæta en á löngum köflum sé um síendurtekin ósannindi og rangar sakargiftir að ræða.

„Um ófagleg vinnubrögð, afskipti af læknisfræðilegri meðferð hjá SÁÁ, vera illa af guði gjörð og hafa ekki þekkingu eða menntun til að sitja í stjórn samtakanna. Störf mín þola gagnrýni, en hún þarf að vera sanngjörn og ég geri kröfu til þess að ásakanir í minn garð séu reistar á staðreyndum. Staðreyndin er sú að ég hef aldrei, og það tel ég eiga líka við um félaga mína í stjórninni, tekið þátt í afskiptum af störfum heilbrigðisstarfsfólks hjá SÁÁ. Aldrei!“

„Menntahroki af verstu gerð“

Ásmundur segist ekki lengur geta setið undir síendurteknum ásökunum án þess að bera hönd fyrir höfuð sér.

„Birgir, maðurinn með háskólaprófin, sneiðir að okkur stjórnarmönnum þegar hann ritar: „Fram hefur komið að margir af forystumönnum áhugasamtakanna hafa haft eigin kynni af Bakkusi.“ Fordómar eru settir fram til að veikja og greinilega er þetta sagt í lítillækkandi tilgangi til að draga hæfni okkar í efa. Menntahroki af verstu gerð. Hvernig sér maðurinn með háskólaprófin fyrir sér lækni sem hefur farið í áfengismeðferð? Dregur hann hæfni hans til að vinna með fólki í áfengismeðferð í efa?“

Ásmundur segir þá sem hafi sigrast á áfengisvanda upplifa skrif Birgis sem niðrandi og hrokafull. Hann minnir á mikilvægt starf frumherja SÁÁ og þau grunngildi AA-samtakanna sem starfsemin hafi byggst á frá upphafi, þar sem enginn mannamunur sé gerður. Jafnframt leggur hann áherslu á mikilvægi grasrótarinnar í starfi samtakanna og segir SÁÁ ávallt hafa lagt rækt við menntun og þjálfun fagfólks sem sinni einstaklingum með áfengis- og vímuefnavanda.

„Fullyrðing háskólamannsins um að fjöldi starfsmanna hafi verið rekinn úr starfi er enn ein birtingarmynd lyginnar sem Birgir Guðjónsson nýtir sér í árásum sínum á stjórn SÁÁ. Hvað næst,“ spyr Ásmundur að lokum.