Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, fagnar samkomulagi Breiðfylkingarinnar og Samtaka atvinnulífsins um viðbrögð vegna forsendubrests kjarasamninga og segir niðurstöðuna afar ánægjulega fyrir íslenskt launafólk.
Samkomulaginu er ætlað að tryggja áframhaldandi gildi kjarasamninganna og skapa skilyrði fyrir lægri verðbólgu og vexti. Meðal þess sem boðað er eru hömlur á gjaldskrárhækkanir ríkis og sveitarfélaga, auknar barnabætur, bann við mánaðarlegum vísitöluhækkunum húsaleigu og sérstakar vaxtabætur til skuldsettra heimila fari verðbólga yfir ákveðin mörk.
Vilhjálmur segir að aðkoma stjórnvalda síðustu daga hafi skipt miklu og að vinna með forsætisráðherra hafi skilað mikilvægum árangri. „Þetta eru afar ánægjuleg tíðindi fyrir íslenskt launafólk,“ segir Vilhjálmur á Facebook-síðu sinni.
Greint var frá samkomulaginu í gærkvöldi en eins og kunnugt er samanstendur Breiðfylkingin af Starfsgreinasambandi Íslands, Eflingu, Samiðn og Byggiðn.
Vilhjálmur hrósar sérstaklega aðkomu Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra og stjórnvalda.
„Við Sólveig Anna, formaður Eflingar, höfum fundað tvívegis með forsætisráðherra í dag, auk funda um liðna helgi. Þessi vinna hefur skilað mikilvægum árangri og ég vil þakka fyrir þá aðkomu,“ sagði Vilhjálmur í færslu á Facebook-síðu sinni á tólfta tímanum í gærkvöldi. Hann dregur niðurstöðurnar saman og segir að þar sé að finna fjölda atriða sem skipta launafólk og fjölskyldur miklu máli.
• Ríkið mun halda hækkunum krónutölugjalda sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs innan 2,5% árið 2027, að kílómetragjaldi undanskildu. Sama hámark gildir um gjaldskrár ríkisstofnana sem hafa bein áhrif á vísitöluna.
• Fyrirtæki í ríkiseigu verða hvött til að halda gjaldskrárhækkunum opinberrar þjónustu sem hafa bein áhrif á vísitöluna innan 2,5%.
• Samband íslenskra sveitarfélaga hvetur sveitarfélögin til að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5%. Aðkoma þeirra er gríðarlega mikilvæg og ég fagna þeim jákvæðu viðbrögðum sem við höfum fengið víða um land.
• Samtök atvinnulífsins hvetja aðildarfyrirtæki sín til að leita allra leiða til að halda aftur af verðhækkunum.
• Lagt verður fram frumvarp eigi síðar en á vorþingi 2027 um einstaklingsbundinn rétt til févítis vegna vangreiddra lágmarkskjara. Þetta er afar mikilvægur áfangi í baráttunni gegn launaþjófnaði.
• Lagt verður fram frumvarp á sama tíma um að lágmarkskjör launafólks falli ekki niður vegna tómlætis. Þetta hefur lengi verið mér mikið hjartans mál. Fólk verður að geta treyst því að réttur þess til umsaminna launa og starfskjara sé varinn.
• Fjárhæðir og skerðingamörk barnabóta verða hækkuð með lagabreytingu á þessu haustþingi í samræmi við fyrirheitin frá 2024. Frá árinu 2028 er stefnt að því að barnabætur þróist með sama hætti og þrepamörk tekjuskatts.
• Lagt verður fram frumvarp á þessu haustþingi um að banna mánaðarlegar vísitöluhækkanir húsaleigu og tryggja að minnst tólf mánuðir líði milli hækkana.
• Ríkið mun tímabundið geta fjármagnað stofnframlög sveitarfélaga til almennra íbúða. Það styður við uppbyggingu hagkvæms leiguhúsnæðis fyrir tekjulægra fólk.
• Fari ársverðbólga yfir 4% í lok október 2027 verða greiddar sérstakar einskiptisvaxtabætur til skuldsettra heimila í upphafi árs 2028, samtals tveir milljarðar króna. Fari verðbólgan yfir 5% verður fjárhæðin þrír milljarðar króna.
• Unnið verður að húsnæðisstuðningi við eigendur húsnæðis, nýju húsnæðislánakerfi, keðjuábyrgð í stærri verklegum framkvæmdum og endurskoðun laga um Ábyrgðarsjóð launa.
• Mótuð verður viðbragðsáætlun gegn vaxandi atvinnuleysi og ráðist í einföldun regluverks til að draga úr kostnaðarþrýstingi í atvinnurekstri.
Vilhjálmur segir ljóst að við náum aðeins árangri ef ríkið, sveitarfélögin og fyrirtækin axli ábyrgð með launafólki. Markmiðið sé að ná tökum á verðbólgunni og skapa skilyrði fyrir lækkun vaxta.
„Því eru samningsaðilar sammála um mikilvægi þess að fylgjast náið með þróun verðbólgunnar og þess vegna var gengið frá samkomulagi að frá og með nóvember 2026 verða haldnir mánaðarlegir fundir formanna og framkvæmdastjóra samningsaðila í vikunni eftir birtingu verðbólgumælingar fyrri mánaðar. Þessi vettvangur verður nýttur til að rýna í verðbólguþróunina, einkum þróun innlendra þátta, og fylgja eftir því að allir axli sína ábyrgð,“ segir Vilhjálmur sem endar færsluna á þessum orðum:
„Lægri verðbólga þýðir minni verðbætur á verðtryggðar skuldir og skapar skilyrði fyrir lægri vöxtum. Það getur létt verulega undir með heimilum og fyrirtækjum og styrkt kaupmátt launafólks.
Lægri verðbólga þýðir minni verðbætur á verðtryggðar skuldir og skapar skilyrði fyrir lægri vöxtum. Það getur létt verulega undir með heimilum og fyrirtækjum og styrkt kaupmátt launafólks.
Ég fagna þessari niðurstöðu innilega. Nú þarf að fylgja fyrirheitunum eftir í verki svo árangurinn skili sér alla leið inn á heimilin!“