Áhrifavaldurinn Andrew Tate, sem er grunaður um kynferðisbrot og bíður framsals til Bretlands, var með dýraklám í símanum sínum. Hann tók einnig upp kynferðisleg myndbönd af sér með stúlku undir lögræðisaldri.
Þetta kemur fram í gögnum í máli Tate eins og greint er frá í miðlinum TMZ.
Andrew Tate er í fangelsi í Miami en sætir ákæru í Bretlandi ásamt bróður sínum Tristan Tate fyrir nauðganir, líkamsárásir, mansal og vörslu öfgafulls kláms. Alls um 60 ákæruatriði sem ná aftur til ársins 2010. Bræðurnir hafa einnig verið ákærðir í Rúmeníu og í Bandaríkjunum fyrir kynferðisbrot.
Í málsgögnunum kemur fram að í farsíma Andrew Tate hafi fundist dýraklám. Það er kynferðislegt myndefni sem sýndi meðal annars hesta og ál. Í myndböndunum mátti sjá manneskju hafa samfarir við dýrin sem voru lifandi.
Þá fundust einnig myndbönd af Tate í kynferðislegum athöfnum með stúlku undir lögaldri, það er 17 ára. Í einhverjum myndböndunum má sá aðra konu í með þeim. Í einu myndbandinu má meira að segja heyra Tate viðurkenna að hann viti að hann gæti lent í vandræðum vegna ungs aldurs hennar.
Bræðurnir munu sitja á bak við lás og slá á meðan mál þeirra eru útkljáð fyrir dómstólum. Það gæti tekið marga mánuði.