Breskur atvinnurekandi á sjötugsaldri hefur verið dæmdur fyrir heimilisofbeldi gagnvart dauðvona fyrrverandi eiginkonu sinni. Meig hann meðal annars í vatnsflöskurnar hennar eins og sást á myndefni úr öryggismyndavélum.
Staðarblaðið Liverpool Echo greinir frá þessu.
Keith Foster, 66 ára gamall atvinnurekandi sólbaðsstofu frá Liverpool, hefur verið dæmdur fyrir heimilisofbeldi gagnvart dauðvona fyrrverandi eiginkonu sinni. Hann sleppur engu að síður við fangelsisrefsingu.
Sakaði hana um framhjáhald með presti
Málið kom upp þegar dóttir konunnar, og stjúpdóttir Keith, setti upp öryggismyndavélakerfi í húsinu. Kom þá í ljós ítrekað heimilisofbeldi og kúgun gagnvart móður hennar sem er dauðvona vegna krabbameins.
Á upptökunum sást meðal annars að Keith sakaði hana um að halda fram hjá sér með presti og var reiður yfir því að hún skyldi ætla að arfleiða eignir sínar til barna sinna.
Kom í ljós að Keith notaði bæði mikið af áfengi og fíkniefnum. Hann skipaði henni sífellt fyrir, bannaði henni að fara úr húsi, niðurlægði hana og hótaði bæði henni og öldruðum foreldrum hennar líkamsmeiðingum. Þá sást að hann hafði migið í vatnsflöskur hennar. Hafði hún orðið veik af því að drekka vatnið sem og dóttir hennar sem hafði fengið kaffi á heimilinu.
Þurfti á stuðningi að halda
Lögmaður móðurinnar sagði að Keith hefði skapað mikla ógn á heimilinu og að eiginkona hans hafi upplifað mikla hættu. Hann hafi oft staðið yfir henni, öskrað og barið í veggi. Þess utan hafi hún reynt að halda sig frá honum.
„Hann hélt áfram að auka alvarleika hegðunar sinnar í því skyni að skaða hana, og hún velti því fyrir sér hver raunverulegur tilgangur hans hafi verið,“ sagði lögmaðurinn David Polglase. „Hún hefur áhyggjur af því að þótt krabbamein hennar hafi tekið sig upp á ný, og hún geti ekki kennt neinum um það, hafi skaðleg áhrif hegðunar sakborningsins haldið áfram að reyna á líkama hennar á tímum þegar hún þurfti á stöðugleika og stuðningi að halda.“
Læst úti í rigningu
Í eitt skiptið hafði hún fengið að fara á hrekkjavökuviðburð með elstu dóttur sinni. En þegar þær komu til baka hleypti Keith þeim ekki inn í húsið. Heldur ekki eftir að hún fékk að fara á tónleika með vinkonu sinni.
Sagði hann að þetta væri refsing fyrir það að hún hafði ekki svarað símtölum frá honum. Mátti hún bíða lengi fyrir utan húsið í rigningu.
Neitaði en játaði síðan
Eftir þetta setti elsta dóttirin með aðstoð móður sinnar upp öryggismyndavélakerfi í húsinu. Það er í svefnherbergi hennar, stofnuni og eldhúsi.
Lögreglan mætti á heimilið þann 26. janúar á síðasta ári og handtók Keith Foster. Hann neitaði hins vegar sök við yfirheyrslu. Kom fram í málinu að hann hefði 10 sinnum áður hlotið dóma, þar á meðal fyrir rán og ofbeldisbrot allt aftur til ársins 1978.
Við þinghaldið játaði Keith hins vegar brot sín og baðst afsökunar. Lögmaður hans, Carmel Wilde, sagði : „Þetta er viðbjóðsleg hegðun. Hún er lúaleg. Ákærði ætti að skammast sín, og gerir það líka.“ Þau eru nú skilin.
Dómur var kveðinn upp í málinu þriðjudaginn 6. október. Keith Foster sleppur við fangelsisvist en fjögurra ára nálgunarbann var sett á hann gagnvart bæði fyrrverandi eiginkonu hans og dóttur hennar. Þá var honum gert að greiða 1500 pund, eða 240 þúsund krónur, í sakarkostnað. Keith þakkaði dómaranum fyrir eftir dómsuppkvaðninguna.