Fréttir

Pútín skerðir frelsi ungra karlmanna – Talið vera undanfari herkvaðningar

Mynd
Pútín vantar hermenn á víglínuna því mannfallið er gríðarlegt. Mynd/Getty

Rússar óttast aðra stóra herkvaðningu í landinu eftir að Vladímír Pútín forseti skerti frelsi ungra manna fyrir skemmstu. Ungir menn mega nú meðal annars ekki taka húsnæðislán eða stofna viðskipti ef þeir hlýða ekki herkvaðningarskipun.

Dagblaðið The Sunday Times greinir frá þessu.

Samkvæmt nýjum rússneskum reglum er frelsi ungra karlmanna í Rússlandi, það er á aldrinum 18 til 30 ára, alvarlega skert. Það er til þess að tryggja það að þeir hlýði herkvaðningarskipunum ef þær berast.

Mannfall Rússa er gríðarlegt á víglínunni í Úkraínu á meðan mannfall úkraínskra hermanna hefur minnkað mikið. Er það einkum vegna aukinnar vélvæðingar, það er notkunar flug og landdróna í stað hermanna.

Óvinsæl herkvaðning

Rússar kváðu um 300 þúsund menn í herinn í september árið 2022, um hálfu ári eftir innrásina, þegar ljóst var að stríðið yrði ekki unnið á skömmum tíma eins og upphaflega var talið. Sú aðgerð reyndist mjög óvinsæl í Rússlandi og mikill fjöldi ungra manna flúði úr landi, til að mynda til Georgíu og Kasakstan.

Sjá einnig:

Ruglingsleg herkvaðningin veldur titringi um allt Rússland

Rússar hafa reynt að bæta upp mannfallið með því að ráða málaliða, til dæmis frá Afríku, en kostnaðurinn hrannast upp. Því hefur orðrómurinn um aðra herkvaðningu aukist að undanförnu. Í fyrri herkvaðningunni voru það einkum ungir menn frá austurhéröðunum sem voru kvaddir í herinn en nú er talið að Rússar verði að kveða menn frá stórborgunum, Moskvu og Sánkti Pétursborg líka, en hingað til hefur Pútín reynt að hlífa þessum borgum frá áhrifum stríðsins.

Stoppað í götin

Nú hafa verið settar nýjar reglur sem gilda um menn á herkvaðningaraldri. Það er ef að þeir hlýða ekki skipunum um kvaðningu þá mega þeir ekki fá húsnæðislán, ekki kaupa eða selja fasteignir í Rússlandi og ekki stofna eða reka fyrirtæki.

Áður hafa ungir menn geta sloppið við herkvaðningu ef þeir uppfylla ákveðin skilyrði. Svo sem að reka fyrirtæki. Nú er verið að loka fyrir allar slíkar gloppur í löggjöfinni.