Fréttir

„Kannski eru þau að niðurlægja okkur öll og grafa undan sjálfri menningunni“

Mynd
Eiríkur Örn Norðdahl

Ekki myndu allir sætta sig við 10 þúsund krónur í laun fyrir einn og hálfan vinnudag. Þetta þurfa þó þeir pistlahöfundar sem taka þátt í Uppástandi á Rás 1 að gera sér að góðu. Um er að ræða dagskrárefni þar sem tekin eru fyrir ákveðin þemu og aðilar sem því tengjast fengnir til að semja og lesa upp pistla því tengdu. Að þessu sinni er þemað Menning og rithöfundurinn Eiríkur Örn Norðdahl er einn af pistlahöfundunum.

Hann lýsir því á vefsvæði sínu, Fjallabaksleiðin, að hann hafi áður verið beðinn um að taka þátt í Uppástandi en þá hafnað því þar sem Ríkisútvarpið bauð honum aðeins 10 þúsund krónur í verktakalaun.

„Svona nokkuð tekur alltaf um einn og hálfan vinnudag, ef vel á að vera, hugsað, skrifað, editerað, endurskrifað, æft og upptekið (sem ég gerði sjálfur) og 10 þúsund er ekki einsoghálfs dags laun.“

Eiríkur ráðfærði sig við gervigreindina og spurði hvað verðlaunaður sérfræðingur í sínu fagi ætti með réttu að fá greitt fyrir svona verk. Gervigreindin nefndi 240-300 þúsund krónur, en Eiríkur reiknar með því að þar hafi mögulega verið um smjaður hjá gervigreindinni að ræða.

Hann hefur gert svipaðan pistil fyrir sænska ríkisútvarpið og greiðslan þar var nánast sú sama og fyrir Uppástand nema í sænskum krónum, en 10.000 sænskar krónur eru um 125 þúsund íslenskar krónur. Með sænsku greiðslunni fékk Eiríkur afsökunarbeiðni þar sem sænska ríkisútvarpið baðst afsökunar á þessu smáræði og auk þess fékk hann 30 prósenta aukagreiðslu þegar pistillinn var endurfluttur.

Súpa að launum

Eiríkur bendir á að það sé ekki bara Ríkisútvarpið sem sé að greiða ölmusu til listamanna. Eitt sinn var Eiríki boðið að vera með upplestur á Akureyri og þiggja súpu að launum. Hann hefur mátt borga allan ferðakostnað innanlands til að kynna verk sem hann gefur hvorki út einn né græðir á einn. Haldi fólk að rithöfundar séu að fá væna fyrirframgreiðslu fyrir skáldverk þá skjátlast því. Eiríkur segir fyrirframgreiðslu fyrir skáldsögu vera þá sömu í dag og fyrir rúmum tuttugu árum og heildargreiðslan fyrir ljóðabók nemur um það bil tveggja daga lágmarkslaunum. Þegar hann tekur að sér að þýða eða skrifa pistla er jafnan ekki greitt samkvæmt réttum taxta og oft boðin eingreiðsla sem er skammarlega lág.

„Fyrir utan þá sem verða bara mjög hissa þegar maður segist hafa reiknað með því að fá eitthvað greitt (og öll skiptin sem maður sagði ekki neitt því það var augljóst að maður átti að vera þarna fyrir ánægjuna) og svo sækir maður um ölmusulaunin sín árlega til listamannalaunasjóðs til þess að ná endum saman upp á von og óvon og mér er hreinlega farið að finnast eins og ég sé að niðurlægja sjálfan mig með þessu. En kannski eru það stofnanirnar og fyrirtækin sem eru að niðurlægja sig með þessu – kannski eru þau að niðurlægja okkur öll og grafa undan sjálfri menningunni með því að verðleggja allt sem listamenn gera í ruslflokki, með því að láta einsog það sé eiginlega einskis virði.“

RÚV bauð 10 þúsund krónur fyrir pistil í Uppástand árið 2022, þegar Eiríkur afþakkaði, og greiðslan er sú sama í ár, fjórum árum seinna. Eiríkur minnir svo á að um verktakagreiðslur sé að ræða sem þarf að greiða af, skatt, tryggingagjald og lífeyri.

„Ég gæti haldið áfram að þylja upp svona dæmi í allan dag,“ skrifar Eiríkur, en pistill hans í Uppástandi fjallar einmitt um þetta. Hann segist hafa íhugað að senda RÚV reikning í samræmi við raunverulegt vinnuframlag sitt, eins og pípari hefði gert, en ákvað að gera það ekki.