Fréttir

Kaldrifjað morð í Kentucky – Ólétt kona fannst látin og fóstrið skorið úr henni

Mynd
April Celio skilur eftir sig þrjú ung börn og eiginmann. Mynd/GoFundMe

Ólétt kona á fimmtugsaldri fannst látin á heimili sínu í Kentucky. Hafði kviður hennar verið ristur upp og fóstrið fjarlægt úr legi hennar.

Breska blaðið The Daily Star greinir frá þessu.

Þann 23. september síðastliðinn fannst kona að nafni April Barlow Celio, 41 árs gömul, látin á heimili sínu í bænum Pinewood í Kentucky. Þegar lögregla mætti á staðinn taldi hún ljóst að Celio hefði verið myrt. Kviður hennar hafði verið ristur upp.

Við rannsókn á vettvangi fundust svo leifar af barnsfóstri. Ekki hefur verið upp gefið hversu langt á leið Celio var komin. Heldur ekki hvernig Celio hafi verið myrt. Það er hvort að kviður hennar hafi verið skorinn upp eftir morð eða fyrir.

Handtóku mann í öðru fylki

Strax féll grunur á mann að nafni DeMarcus Kenneth Johnson-Wright, og þann 25. september var gefin út handtökuskipun á hendur honum. Fyrst fyrir rán og mannrán en þann 30. september fyrir morð, heimilisofbeldi og skemmdir á sönnunargögnum.

Ekki er vitað hvernig Johnson-Wright og Celio tengdust, ef þau gerðu það yfir höfuð, en Celio var gift manni að nafni Antonio og átti þrjú önnur börn.

Johnson-Wright á sér langa brotasögu. Hann hefur hlotið marga dóma fyrir ofbeldi í nágrannafylkinu Tennessee og er þar einnig með útistandandi handtökuskipun.

Mynd
Johnson-Wright á langa brotasögu að baki. Mynd/Lögreglan í Montgomery sýslu

Rannsókn málsins leiddi lögregluna einmitt til Tennessee. Það er til bæjarins Clarksville, um 400 kílómetrum frá Pinewood. Fékk lögreglan því aðstoð alríkislögreglunnar við að handsama Johnson-Wright þar.

Johnson-Wright var handtekinn um klukkan 11 þann 30. september í Clarksville. Við húsleit fundust sönnunargögn sem tengja hann við morðið á April Celio. Var hann fluttur í fangageymslu og bíður nú framsals til Kentucky.

Safna fyrir fjölskylduna

Útför Celio fór fram á mánudag, 5. október, og hefur fjölskylda hennar sett á laggirnar söfnun á hópfjármögnunarsíðunni Go Fund Me. Það er fyrir útfararkostnaðinum og til að styðja við fjölskylduna.