Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, er harðlega gagnrýndur fyrir að segja að Hamas njóti stuðnings á Vesturlöndum þar sem vígasamtökin séu tákn um afneitun vestrænnar menningar og kapítalisma.
Í dag eru liðin þrjú ár frá árás Hamas á Ísrael sem kostaði um 1.200 manns lífið, þá voru á þriðja hundrað gíslar teknir inn á Gaza. Samkvæmt tölum Sameinuðu þjóðanna hafa um 59 þúsund almennir borgarar látið lífið á Gaza síðan þá af völdum Ísraelshers.
Hamas tákn um afneitun vestrænnar menningar
Hannes segir í tilefni dagsins að Hamas séu hálfu verri en önnur hryðjuverkasamtök, nefnir hann til sögunnar IRA á Írlandi og ETA á Spáni.
„Hamas eru þó hálfu verri, fullkomnir villimenn, nauðga konum, brenna inni ungabörn, hálshöggva karla. Þeir eru jafnvel verri en nasistarnir, því að þeir hreykja sér af ódæðum sínum, en reyna ekki að fela þau. Hvernig stendur þá á því, að þeir njóta miklu meiri stuðnings á Vesturlöndum en IRA og ETA?,“ segir Hannes.
„Svarið er einfalt og augljóst. Þeir eru tákn um afneitun vestrænnar menningar, sem margir minnipokamenn hata, af því að frjáls markaður er eins og spegill, sem menn geta horft á sjálfa sig í.“ Í þeim spegli sjáist hvar hæfileikar nýtast öðrum og þeir sem hafi ekki slíka hæfileika séu gramir og setjist á „tossabekk tilverunnar“ í háskólum, opinberum stofnunum og fjölmiðlum.
„Nú eru þeir Stalín, Maó, Castró og Pol Pot, sem veittu þessu fólki innblástur, horfnir, aðeins eftir trúðar eins og Maduro. Fyrir þessu fólki á Vesturlöndum eru Hamas liðar eins og Rauði herinn Stalíns, Alþýðuher Maós, skæruliðasveit Castrós: rómantísk, en um leið öflug, baráttusveit gegn kapítalisma, fjölbreytni, umburðarlyndi, atvinnufrelsi, veraldlegri velgengni, dálitlum meinlausum solli, glaumnum inni í kauphöllum og á útiveitingastöðum.“
Ekki stuðningur við Hamas að gagnrýna Netanyahu
Ummæli Hannesar hafa fallið í grýttan jarðveg á samfélagsmiðlum. Meðal annars segir Gunnar Axel Axelson, fyrrum bæjarstjóri í Vogum:
„Það kemur eflaust engum á óvart að þú sért stuðningsaðili þjóðarmorðsins.“
Hagfræðingurinn Gauti B. Eggertsson segir að hann hafi heyrt fáa mæla Hamas bót.
„Hamas hefur ofsótt og myrt íbúa Gaza um langa hríð. Það var meðvituð stefna Bibis Netanyahus að styðja samtökin til að sundra Palestínumönnum, líkt og hann lýsti í frægum ummælum sínum, því þau væru besta tryggingin gegn stofnun sjálfstæðs palestínsks ríkis. Þá hefur þessi hræðilegi söfnuður myrt íbúa Ísraels á skelfilegan hátt.
En erfitt er að sjá hvers vegna það ætti á nokkurn hátt að teljast stuðningsyfirlýsing við þessi fúlmenni að gagnrýna viðbrögð Netanyahus og ísraelskra stjórnvalda. Mannfall meðal Palestínumanna er gífurlegt, landnemar ganga berserksgang á Vesturbakkanum og Netanyahu og ísraelsk stjórnvöld hafa sætt rannsókn alþjóðlegra dómstóla,“ segir Gauti. Það sé Hannesi til lítils sóma að smætta harmleikinn í Miðausturlöndum niður í svo svarthvíta mynd.
„Og það tekur eiginlega steininn úr að blanda frjálsum viðskiptum inn í þetta. Það er líklega eins fáránlegt og hugsast getur, því frelsi til viðskipta á Gaza hefur verið stórlega takmarkað um áratugaskeið, meðal annars vegna lokunar- og viðskiptatakmarkana Ísraels, sem hafa dregið þrótt úr efnahagslífinu,“ segir Gauti.
„Að ég tali nú ekki um bullið um háskólaprófessora sem eiga víst í dag að vera einhvers konar stuðningsmenn einhverra mestu fjöldamorðingja sögunnar, Stalíns og Maós, og líta á Hamas í einhverju rómantísku stjörnuljósi þeirra glæpamanna. Hvaða háskólaprófessorar eru þetta? Hverjir hafa lýst slíkum skoðunum? Hvaða þvæla er þetta eiginlega?“
Oft ómeðvitað hatur á gyðingum og Bandaríkjunum
Árni nokkur spyr Hannes beint hvernig hann túlki það sem svo að þeir sem séu á móti aðgerðum Ísraels séu andsnúnir vestrænni menningu og viðskiptafrelsi.
„Það, sem ég er að skýra, er, hvers vegna Hamas nýtur miklu meiri samúðar en ETA og IRA og raunar margar aðrar aðskilnaðar- og hryðjuverkahreyfingar,“ segir Hannes. „Skýringin er, að þetta snýst ekki um Ísrael. Þetta snýst um vestrið. Draumríki hatursmanna vestrænnar menningar hafa fallið, hvert af öðru, Rússland, Kína, Kambódía, Kúba, svo að eftir stendur einhver hugmynd um Palestínu, sem aldrei hefur verið til sem land eða þjóð.“
Þorgeir nokkur bendir á að margir minnist dagsins fyrir viðbrögð Ísraels, segir hann að þau hafi ekki verið í samræmi við tilefnið, sem var árás Hamas. Hannes segir það alrangt.
„Ísraelsmenn eru í senn að hafa hendur í hári þeirra, sem myrtu fólk, og þeim hefur tekist að fella um 4.000 slíka morðingja, en þeir gátu borið kennsl á þá á myndunum, sem Hamas liðar sjálfir dreifðu (því að ólíkt nasistum reyna þeir ekki að leyna ódæðum sínum). Jafnframt eru þeir að koma í veg fyrir, að þetta geti endurtekið sig,“ segir Hannes. Það sé rangt að halda því fram að það sé markmið Zionista að útrýma Palestínumönnum, það séu um tvær milljónir þeirra með ríkisborgararétt í Ísrael.
„SÞ lögðu til að skipta landinu. Gyðingar samþykktu það. Arabaríkin höfnuðu því og réðust á Ísrael, þegar það var stofnað. Þau hafa síðan hvað eftir annað ráðist á Ísrael. Það er öllu snúið við. Ég er að reyna að skýra það. Þessu ræður ekki umhyggja um Palestínu Araba, heldur hatur á gyðingum og hatur á Bandaríkjamönnum og hatur á vestrænni menningu, oft ómeðvitað.“