Héraðssaksóknari hefur ákært mann á fimmtugsaldri fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Maðurinn er sakaður um að hafa staðið að innflutningi á samtals 604 töflum af OxyContin 80, ætluðum til söludreifingar hér á landi, en fíkniefnin voru í farangurstösku sem ákærði kom með til landsins mánudaginn 23. júní 2025 með flugi frá Tenerife. Hinn ákærði, Hafþór Fjalar Kristinsson, skildi töskuna eftir eftir við komuna til landsins en reyndi að sækja hana hjá farþegaþjónustu Airport Associacates fimmtudaginn 26. júní 2025.
Héraðssaksóknari krefst þess að hann verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Einnig er krafist upptöku á fíkniefnunum.
Stakk mann ítrekað
Ákærði á langan brotaferil að baki en árið 2014 var hann dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Frakkastíg í Reykjavík. Vísir greindi þá frá því að hann hefði stungið mann ítrekað í líkama og andlit með Leatherman-töng sem er með hníf í öðrum endanum.
Á þessum tíma hafði Hafþór áður verið dæmdur fyrir tvær aðrar líkamsárásir, árið 2010 og 2012.
Síðastliðið vor var hann síðan sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, að aka bíl sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna bílnum vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (sjá mbl.is).
Málið er rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur en fyrirtaka var í því 28. september síðastliðinn.