Fréttir

Fékk nóg eftir aldarfjórðung og vildi ekki leyfa nágrönnunum lengur að keyra yfir lóðina

Mynd
Skrifstofur Grímsnes- og Grafningshrepps.

Eigandi lóðar í frístundabyggð í Grímsnes- og Grafningshreppi hafði ekki erindi sem erfiði þegar hann kærði breytingu á deiliskipulag fyrir byggðina sem gerð var árið 2002. Sagði eigandinn að skipulagsbreytingin hefði verið samþykkt án nokkurs samráðs við hann og í henni hefði falist allan þennan tíma að eigendur næstu lóðar þyrftu að keyra á vegi sem væri á hans lóð til að komast á sína lóð.

Samkvæmt deiliskipulaginu, sem er upphaflega frá 1998, eru lóðir á umræddu svæði ætlaðar fyrir frístundabyggð og hrossabeit.

Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti árið 2002 að breyta deiliskipulaginu vegna aðkeyrslu að fimm lóðum á svæðinu.

Eigandi einnar af þessum lóðum kærði breytinguna nú fyrir skömmu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, 24 árum eftir að hún tók gildi. Vildi hann meina aðmálsmeðferðarreglum og ákvæðum laga hafi ekki verið fylgt við deiliskipulagsbreytinguna. Samkvæmt þágildandi skipulags- og byggingarlögum hafi sveitarstjórn verið óheimilt að breyta deiliskipulagi á þann hátt að umferð eða aðkoma yrði færð yfir einkaland án kynningar og andmælaréttar viðkomandi landeiganda. Breytingin hafi hins vegar farið fram án vitundar og samþykkis hans.

Kvöð

Sagðist eigandinn hafa leyft eigendum næstu lóðar að nýta veg sem lægi yfir hans lóð af greiðasemi en það hafi aldrei staðið til að vegslóðinn yrði gerður að varanlegri aðkomu að lóðinni þeirra. Slíkur umferðarréttur fæli í sér kvöð sem hefði þurft að þinglýsa á lóð hans. Án samþykkis landeiganda eða formlegs eignarnáms fæli slík skipulagskvöð í sér ólögmæta skerðingu á friðhelgi eignarréttar, samkvæmt stjórnarskránni.

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vísaði kærunni hins vegar frá á þeim forsendum að kærufrestur væri löngu liðinn. Telur nefndin skilyrði stjórnsýslulaga, um að hægt sé að taka stjórnsýslukæru til meðferðar að loknum kærufresti séu til staðar veigamiklar ástæður fyrir því, ekki uppfyllt. Segir nefndin að horfa verði einnig til þess að í málinu séu fleiri en einn málsaðili og þeir hafi andstæða hagsmuni.

Það virðist því sem að kærandinn þurfi að sætta sig við að nágrannar hans fái að aka yfir hans lóð til að komast að sinni.