Fréttir

Davíð íþróttakennari segir þetta vekja spurningar um hreyfingu barna

Mynd
Mynd/Getty

Davíð Már Sigurðsson, sund- og íþróttakennari, furðar sig á því að nemendur allt niður í fjórða bekk þurfi að fá leyfi frá hreyfitímum innan grunnskóla, segir hann að annað hvort sé verið að draga stórlega úr væntingum til barna eða að æfinga- og keppnisálag íþróttafélaganna sé langt yfir eðlilegum mörkum.

Hálftími af hreyfinámi

Davíð Már, sem hefur reglulega tjáð sig um samfélagsmál, segir í grein í Morgunblaðinu í dag að reglulega fái kennarar beiðnir frá foreldrum og nemendum um að þeir þurfi ekki að taka þátt í kennslustund dagsins sökum þess að fara á fram keppni seinna um daginn, eða að keppt hafi verið daginn áður og þar með sé ekki hægt að taka þátt í skólasundi eða íþróttum vegna harðsperra og strengja.

„Til að lesendur geri sér grein fyrir því hversu undarlegt þetta er þarf fyrst og fremst að leggja á borð nokkrar forsendur sem varða skólaíþróttir og sund. Kennslustundir eru 40 mínútur. Af þessum 40 mínútum geta fimm og allt upp í 10 mínútur farið í fataskipti og nafnakall, för í gegnum klefa og að koma sér út í laug eða inn í sal,“ segir Davíð.

„Það sem eftir situr er því með góðu móti 30 mínútur. Af þessum 30 mínútum geta farið allt að 10 mínútur í innlögn á efni tímans, skiptingu í lið eða hópa og fleira þvíumlíkt, sérstaklega þegar um stóra hópa ræðir. Þá standa eftir 20 mínútur sem fara í margs konar hreyfinám sem rúmast innan kennslustundar. Svo við kjöraðstæður í blautum draumi hvers kennara þegar allir væru tilbúnir við upphaf kennslustundar, ekkert þyrfti að útskýra og gefinn væri tími til fataskipta fyrir og eftir kennslustund eru nemendur í allra besta falli að ná 40 mínútum af miðlungsákefð, þótt raunhæft væri að ætla 20-30 mínútur.“

Vekur spurningar um hreyfingu barna

Við það vakni spurningin hvort það sé líklegt að þessi hálftími af hreyfingu sé áhrifaþáttur í ofþjálfun.

„Í kennslustundum þar sem ég leyfi mér að fullyrða að ákefð er langt undir mörkum sem hefðbundnar íþróttaæfingar leggja upp með? Og ef 20 mínútur af hreyfingu með bekkjarfélögunum undir leiðsögn kennara tvisvar til þrisvar í viku eru nemendum ofviða vaknar spurningin: Þarf ekki að gera einhverjar aðrar lífsstílsbreytingar en að sleppa kennslustundum á skólatíma?,“ segir hann.

„Annaðhvort erum við að draga stórlega úr væntingum til barna eða að æfinga- og keppnisálag íþróttafélaganna er langt yfir eðlilegum mörkum. Ég skal ekki segja hvort er rétt, en þetta vekur vissulega spurningar hvað varðar hreyfingu barna. Sérstaklega í ljósi þess að fjölmargar rannsóknir síðustu ár hafa gefið til kynna að snemmbær sérhæfing og ofuráhersla á keppni á yngri stigum er algengasta orsök brottfalls barna og ungmenna úr skipulögðu íþróttastarfi.“