Fréttir

Christa Pike framdi annan hrottalegan glæp í fangelsinu

Mynd
Mál Christu Pike hafa verið mikið til umfjöllunar eftir misheppnaða aftöku hennar.

Christa Pike, hinn dauðadæmdi fangi í Tennessee sem lifði af aftökutilraun í lok síðasta mánaðar, er vöknuð úr dái. Ekki eru allir á einu máli um hvað eigi að taka við og margir rifja upp hið hrottalega morð sem hún var dæmd fyrir árið 1996. En fæstir vita að Pike framdi annan hryllilegan glæp í fangelsinu.

Miðillinn Ladbible reifar þetta mál sem kom upp árið 2001, þegar Christa Pike sat inni í kvennafangelsinu í Tennessee og beið örlaga sinna.

Gögnin úr þessu máli má finna í skjölum áfrýjunardómstólsins og hefur það unnið gegn Christu Pike í baráttu fyrir því að sleppa við aftöku.

Eldur kviknaði

Málið kom upp eftir að eldur kom upp í fangelsinu sem þýddi að fjölda fanga var hleypt úr klefum sínum og settir í stærri fangageymslur á öðrum stað. Ekki er vaninn að fangar af dauðadeild blandist saman við fanga í almennu rými.

Pike var sett í geymslu með tveimur öðrum konum, Patriciu Jones og Natöshu Cornett að nafni. Fljótlega kom upp ágreiningur á milli hinna tveggja síðarnefndu kvenna sem braust út í slagsmálum.

Sjá einnig:

Christa Pike er vöknuð

Þá steig Christa Pike inn í slagsmálin, kom aftan að Jones og byrjaði að kyrkja hana með skóreim. Missti Jones þá meðvitund.

25 ára dómur

Pike var ákærð fyrir manndrápstilraun en hún sagðist aðeins hafa verið að koma Cornett til varnar. Kemur fram í gögnum þess máls að Jones hefði dáið ef kyrkingin hefði staðið yfir 30 sekúndum lengur. Úr gögnum símkerfisins kom fram að Pike hefði viðurkennt fyrir móður sinni að hún hafi ætlað að vinna Jones mein.

Var Pike sakfelld í málinu og bættist 25 ára fangelsisdómur fyrir manndrápstilraun við dauðadóm hennar fyrir morðið á Colleen Slemmer.