Fréttir

Veggjalús berst inn á íslensk hótel á þriggja daga fresti

Mynd
Mynd: Getty

Veggjalús hefur gert vart við sig í tugum hótelherbergja hér á landi það sem af er ári. Alls hafa 75 tilfelli verið skráð hjá finnska fyrirtækinu Valpas, sem þjónustar nú 53 íslensk hótel.

Fjallað er um þetta í Morgunblaðinu í dag og rætt við Martiom Gois, forstjóra og einn stofnenda Valpas. Miðað við tölur fyrirtækisins hefur veggjalús borist með gestum inn á hótel sem nota kerfið að jafnaði á um þriggja daga fresti.

Tekið skal fram að í öllum tilfellunum tókst að grípa inn í áður en lúsin náði að dreifa sér og koma sér fyrir í herbergjunum.

Martim segir í samtali við Morgunblaðið að ferðavenjur þeirra sem sækja Ísland heim geti auðveldað veggjalús að ferðast á milli staða.

Þannig gisti erlendir ferðamenn gjarnan á mörgum gististöðum á sama ferðalaginu og lúsin geti leynst í farangri. Þannig þarf ekki nema einn ferðamann til að bera hana með sér frá einu hóteli til annars.

Valpas hóf starfsemi hér á landi fyrr á þessu ári og hefur vaxið hratt. Að sögn Morgunblaðsins voru 15 íslensk hótel komin með vottun fyrirtækisins í febrúar en þau eru nú 53.

Búnaður fyrirtækisins er settur við rúm hótelgesta og er ætlað að fanga veggjalús áður en hún nær að hreiðra um sig. Finnist lús skráir starfsfólk hótelsins tilfellið og sendir fyrirtækinu mynd.

Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.