Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins, telur að áhrif leigubremsu á húsnæðismarkaðinn verði meiri en lagt er upp með í frumvarpi Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Í frumvarpinu er lagðar til breytingar á húsaleigulögum þar sem meðal annars er komið á svokallaðri leigubremsu. Leigubremsa þýðir að hækkun á leiguverði má aldrei verða meiri en hækkun á vísitölu neysluverðs. Ef að leigusali ætlar að hækka leiguna reglulega á leigutímanum þarf það að koma fram í leigusamningnum og verður bannað að hækka leiguna umfram það. Samtök leigjenda á Íslandi hafa fagnað frumvarpinu.
Dragi úr framboði og hækki leiguverð
Þorsteinn, sem var áður félags- og jafnréttismálaráðherra, segir í færslu á Facebook að líklegast muni framboð leiguhúsnæðis minnka og að leigusamningar verði gerðir til skemmri tíma en ella og síður endurnýjaðir, það sé í takt við reynslu annarra ríkja af slíkri leigubremsu.
„Til skamms tíma auka þær vissulega fyrirsjáanleika leiguverðs en til lengri tíma draga þær úr framboði leiguhúsnæðis og hækka þar með leiguverð,“ segir Þorsteinn.
„Verði hækkun leiguverðs bundin við vísitölu neysluverðs að hámarki, líkt og frumvarpið gerir ráð fyrir, má reikna með að áhrifin verði þau að framboð á almennum leigumarkaði dragist saman þar sem leigusalar selji frekar íbúðir sínar en leigi þær út.“
Í dag er hlutfall verðtryggðra leigusamninga um 63% en gera mætti ráð fyrir því að þeim muni fjölga til muna.
„Ástæðan ætti að blasa við. Fasteignaverð hækkar til lengri tíma í takt við laun og vaxtastig. Laun hafa að jafnaði hækkað árlega um 1-2% umfram verðlag og til lengri tíma hefur fasteignaverð þróast með svipuðum hætti. Verði leigusölum til langs tíma meinað að hækka leiguverð í takt við fasteignaverð myndast hvati til að selja þær eignir fremur en að leigja áfram út. Jafnframt er viðbúið að mikið misræmi myndist á markaði á leiguverði í eldri samningum í samanburði við nýja samninga sem taka þá mið af hækkun fasteignaverðs,“ segir Þorsteinn.
„Ég dreg ekki í efa að góður ásetningur fylgi þessari lagasetningu. Það er þó engin trygging fyrir því að áhrif hennar verði til góðs þegar upp er staðið. Þegar hið opinbera grípur inn í markaði er eðlilegt að fyrir liggi greining á langtímaáhrifum slíkra inngripa. Það eru vonbrigði að sjá að enga slíka greiningu er að finna í greinargerð frumvarpsins.“
Telur mikið svigrúm til að hagnast minna
Stefán Ólafsson, prófessor emeritus í félagsfræði við Háskóla Íslands og sérfræðingur hjá Eflingu, segir að Þorsteinn sé að draga rangar ályktanir.
„Bæði íbúðaverð og leiga hafa hækkað langt umfram almennt verðlag og raunar líka umfram kaupmáttaraukningu launa. Þó leiga fylgi í staðinn almennum hækkunum verðlags þá þýðir það ekki að útleiga íbúða og atvinnuhúsnæðis verði óarðbær og leggist af,“ segir Stefán.
„Hún gæti einungis orðið minna arðbær, en hagnaður leigufélaga sýnir glögglega að mikið svigrúm er þar til að lifa vel við lægra hagnaðarstig. Hagnaður leigufélaganna á almennum markaði hefur verið meiri en hagnaður bankanna (sem hlutfall af veltu).“