Fréttir

Sigurður Helgi segir að það verði að taka ákvörðun um Heiðarfjall – „Þetta efni er hryllingur“

Mynd
Sigurður Helgi þingmaður Flokks fólksins vill að Heiðarfjall verði hreinsað. Þar hafi orðið stærsta umhverfisslys Íslandssögunnar.

Sigurður Helgi Pálmason, þingmaður Flokks fólksins, segir að íslensk stjórnvöld verði að taka ákvörðun um hreinsun Heiðarfjalls á Langanesi. Eitrunin sé slík. Ef ekki verði farið í hreinsun strax verði að minnsta kosti að loka svæðinu.

„Þetta er stærsta mengunarslys Íslandssögunnar,“ segir Sigurður Helgi hefur hefur mælt fyrir hreinsun Heiðarfjalls á Langanesi.

Á Heiðarfjalli er gríðarleg mengun eftir veru bandaríska hersins sem rak þar ratsjárstöð. Í jarðveginum er meðal annars asbest og PCB sem notað var í ýmis tæki á svæðinu en skilið eftir og mengar gríðarlega út frá sér. Dýralíf, vatn og gróður er þar í mikilli hættu.

„Þetta efni er hryllingur,“ segir Sigurður Helgi um PCB eitrunina. „Þetta breytir DNA.“

Risastórt mál

Bendir hann á að magn PCB í jarðveginum sé um 700 þúsundfalt yfir mörkum. Þarna í kring búi fólk, bændur með skepnur og svo er vitaskuld villt fuglalíf á staðnum.

Málið er ekki nýtt af nálinni. Í rúmlega hálfa öld hefur fólk á svæðinu þrýst á um hreinsun og einnig hafa nokkrir þingmenn beitt sér fyrir málinu í gegnum tíðina. Meðal annars Ögmundur Jónasson og Kolbeinn Óttarsson Proppé.

Það sem hefur hindrað framgang málsins er vitaskuld kostnaðurinn. Þingið lét gera skýrslu um málið og þar koma engar fastar tölur fram en ljóst er málið er mjög umfangsmikið. Til að mynda er ekki hægt að hreinsa jarðveginn hér á landi heldur yrði að flytja hann erlendis, til dæmis til Noregs, þar sem tæknin er til staðar.

Umræða um Bandaríkin skili engu

Annað sem hefur vafist fyrir fólki er ábyrgðin. Sumir telja að það sé Bandaríkjamanna að hreinsa svæðið og bera kostnaðinn af því þar sem mengunin er þeirra. Sigurður Helgi segir hins vegar að sú umræða hafi ekki skilað neinu undanfarna áratugi. Íslendingar tóku við svæðinu og þar við situr. Ef hreyfing eigi að komast á málið verðum við að gera þetta sjálf.

„Við getum ekki látið það stoppa okkur hvað málið er stórt,“ segir Sigurður Helgi sem ræddi málið meðal annars í þinginu í dag. Hann segist einnig hafa rætt við Jóhann Pál Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um þetta. Hann segist verða að vera vongóður um að það komist hreyfing á málið. Þannig virki pólitíkin.

Lokun

En ef það verða frekari tafi á hreinsun Heiðarfjalls þá verði einfaldlega að bregðast við. Það er að loka svæðinu fyrir fólki og búfénaði þangað til hreinsun hafi farið fram. Þetta myndi ekki stöðva villta fugla að fljúga þangað en þetta myndi samt hindra ákveðinn skaða.