Tveir breskir lögreglumenn sem skutu 92 ára heilabilaðan mann með rafbyssu, börðu með kylfu og tæmdu dós af piparúða framan í hafa verið reknir. Rannsókn leiðir í ljós að þeir beittu óhólflegri valdbeitingu.
Breska blaðið The Daily Star greinir frá þessu.
DV hafði áður sagt frá máli hins 92 ára Donald Burgess sem lést á spítala skömmu eftir valdbeitingu tveggja lögreglumanna á hjúkrunarheimili í bænum St. Leonards, sunnan við London, þann 21. júní árið 2022.
Starfsfólkið hringdi á lögregluna þegar Burgess, sem sat í hjólastól sínum, potaði í konu með litlum eldhúshníf og neitaði að láta hann frá sér. Lögreglumennirnir Stephen Smith og Rachel Comotto mættu á staðinn og yfirbuguðu Burgess með rafbyssu, kylfu og piparúða. Var hann fluttur á spítala og lést 22 dögum seinna.
Sjá einnig:
Lögregla skaut 92 ára gamlan heilabilaðan mann með rafbyssu – Lést skömmu seinna á spítala
Samkvæmt niðurstöðu rannsóknarþinghalds um dauðsfallið notuðu lögreglumennirnir óhóflega valdbeitingu við handtöku Burgess. En myndband úr búkmyndavélum var notað við rannsóknina.
Grínaðist með atvikið
Í þinghaldinu kom meðal annars fram að Comotto hafði grínast með atvikið á samfélagsmiðlum, daginn sem þetta kom upp og notað tjákn sem sýndi eldingu, með vísun í rafbyssuskotið.
Smith og Comotto höfðu áður verið sýknuð af líkamsárás í málinu en hefur nú verið sagt upp störfum hjá lögreglunni í Austur-Sussex og mega ekki starfa sem lögreglumenn í Bretlandi framar.
„Við vitum að upptökur af þessu atviki, sem sýna hversu mikla valdbeitingu lögreglumennirnir beittu gegn Burgess, hafa vakið miklar áhyggjur og reiði. Hér var ekki um að ræða atvik þar sem lögreglumennirnir eða aðrir íbúar hjúkrunarheimilisins væru í bráðri hættu,“ sagði Emily Barry, samskiptastjóri lögreglunnar. Hugur lögreglunnar væri hjá fjölskyldu Burgess.